Hildur Eiríksdóttir (Akurey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. desember 2014 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. desember 2014 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hildur Eiríksdóttir''' húsfreyja í Akurey fæddist 8. jan. 1862 í Skála u. Eyjafjöllum og lést 8. marz 1923.<br> Foreldrar hennar voru Eiríkur Hannesson vinnumaður, ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hildur Eiríksdóttir húsfreyja í Akurey fæddist 8. jan. 1862 í Skála u. Eyjafjöllum og lést 8. marz 1923.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Hannesson vinnumaður, húsmaður í Kárhólmum og Kerlingardal í Mýrdal, f. 1833 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 9. desember 1901 í Kerlingardal, og kona hans Halldóra Gunnsteinsdóttir húsfreyja, f. 1831 í Jórvík í Álftaveri, d. 18. júní 1896 í Kerlingardal.

Hildur fluttist úr Mýrdal að Frydendal 1886 og var vinnukon þar 1887 og 1888, í Nýborg 1889-1891. 1892 voru þau Sigurður hjón og vinnufólk í Nýborg með börnin Sigríði Jónínu og Jóhann Ólaf. Þau voru húsfólk í Uppsölum 1893 með börnin, bjuggu í Dölum 1894 með börnin tvö.
Hildur var vinnukona í Vanangri hjá Önnu Benediktsdóttur ljósmóður 1895 með Sigríði Jónínu og Þorbjörgu hjá sér.
Þau Sigurður fóru til Norðfjarðar 1896, hann frá Vilborgarstöðum með Jóhann, Hildur með Sigríði Jónínu dóttur sína frá Vanangri, en Þorbjörg varð eftir, tökubarn hjá Önnu og Pétri, nú í Péturshúsi, sem var síðara nafn á Vanangri .
Þau Sigurður bjuggu í Nesþorpi í Norðfirði 1896-1902.
Á Norðfirði eignuðust þau Jónínu Hólmfríði og Engilbert Ottó.
Þau komu til Eyja frá Brekku í Mjóafirði 1902 með 3 börn sín, Guðrúnu Dagmar, Engilbert Ottó og Sigríði Jónínu yngri, en án Jóhanns Ólafs. Hann hafði verið gefinn til Færeyja.
Munu þau hafa flust þá í Björgvin, sem Elís Sæmundsson flutti úr og að Bergstöðum.
Sigurður og Hildur bjuggu í Björgvin, líklega frá 1903, a.m.k. 1906-1908.
Þau reistu húsið Akurey (við Vestmannabraut 46A) 1908 og bjuggu þar síðan. Sigurður lést 1914 og Hildur 1923.

Maður Hildar, (30. október 1892), var Sigurður Sigurðsson bóndi, sjómaður og smiður, f. 25. janúar 1865, d. 30. nóvember 1914.
Börn þeirra hér:
1. Sigríður Jónína Sigurðardóttir, f. 22. september 1890, nýfædd hjá þeim í Nýborg 1890, tveggja ára þar með þeim 1892, 5 ára með Hildi í Vanangri 1895, dó 15. febrúar 1898 í Stekkjarnesi í Norðfirði.
2. Jóhann Ólafur Sigurðsson, f. 11. janúar 1892. Hann var gefinn til Færeyja 1899, 7 ára, fór frá Nesi í Norðfirði samtímis Stefáni Péturssyni.
3. Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 23, f. 22. febrúar 1895, d. 9. júní 1948.
4. Jónína Hólmfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30, (Hofsstöðum), f. 29. júlí 1897 á Norðfirði, d. 25. nóvember 1978.
5. Sigríður Jónína Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30, (Hofsstöðum), f. 23. september 1898 í Stekkjarnesi í Norðfirði, d. 30. desember 1977.
6. Engilbert Ottó Sigurðsson, f. 16. október 1901, d. 5. maí 1930.
7. Alfons Halldór Sigurðsson, f. 2. mars 1904, d. 2. desember 1927.


Heimildir