Herborg Jónsdóttir (Sæbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. september 2019 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. september 2019 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Herborg Jónsdóttir''' frá Árbæ, húsfreyja, verslunarmaður, sjúkrahússstarfsmaður fæddist 4. desember 1944 á Sæbergi.<br> Foreldrar hennar voru Jón M...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Herborg Jónsdóttir frá Árbæ, húsfreyja, verslunarmaður, sjúkrahússstarfsmaður fæddist 4. desember 1944 á Sæbergi.
Foreldrar hennar voru Jón Tómas Markússon sjómaður, vélstjóri, f. 30. nóvember 1915 á Sæbóli í Aðalvík, N-Ís, d. 13. júní 1989, og kona hans Kjartanía Vilborg Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1922 á Bergstöðum, d. 16. september 2015.

Börn Kjartaníu og Jóns:
1. Vilhjálmur Már Jónsson kennari, skólastjóri, f. 16. apríl 1943 á Sæbergi. Kona hans var Jóna Ólafsdóttir.
2. Herborg Jónsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, sjúkrahússstarfsmaður, f. 4. desember 1944 á Sæbergi. Maður hennar, skildu, var Jóhannes Haraldsson.
3. Elínborg Jónsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 9. nóvember 1950 á Hásteinsvegi 7, d. 28. maí 2016. Maður hennar var Bragi Jónsson frá Ísafirði, f. 15. desember 1947, d. 28. maí 2003.
4. Tómas Kristján Jónsson sjómaður og beitningamaður í Grundarfirði, f. 10. janúar 1952 á Gunnarshólma. Ókv.
5. Hörður Jónsson útgerðarmaður í Grundarfirði, býr í Þýskalandi, f. 28. nóvember 1958. Kona hans er Arnhildur Þórhallsdóttir.
6. Viðar Jónsson sjómaður, starfsmaður ABC-barnahjálparinnar, f. 15. apríl 1960, d. 13. nóvember 2014. Kona hans Kristín Sóley Kristinsdóttir.

Herborg var með foreldrum sínum í æsku, með þeim á Sæbergi, í Þorlaugargerði vestra 1946-1947, á Hásteinsvegi 7 1949, á Gunnarshólma 1952, síðan í Árbæ, Brekastíg 7 A.
Hún lauk 4. bekkjar gagnfræðaprófi í Gagnfæðaskólanum 1961.
Herborg var afgreiðslukona í Kaupfélagi Vestmannaeyja og hjá Bókabúð Þorsteins Johnsonar, bjó á Faxastíg 6. Eftir flutning til Hafnarfjarðar í Gosinu vann Herborg hjá Bókabúð Oliver Steins í Hafnarfirði í sjö ár, en flutti þá til Grindavíkur og hefur búið þar síðan, vann hjá Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð þar.
Herborg eignaðist barn með Kristjáni 1969.
Þau Jóhannes giftu sig 1983, eignuðust eitt barn, bjuggu í Grindavík, en skildu 2014.

I. Barnsfaðir Herborgar er Kristján Sigurður Kristjánsson, f. 16. október 1947 að Helgafellsbraut 1.
Barn þeirra:
1. Margrét Kristjánsdóttir húsfreyja, þjónn, f. 25. september 1969. Maður hennar Jóhannes Vilbergsson.

II. Maður Herborgar, (3. desember 1983, skildu) var Jóhannes Haraldsson húsasmíðameistari úr Kópavogi, f. 31. maí 1942. Foreldrar hans voru Haraldur Jóhannesson úrsmiður, vélstjóri, f. 22. október 1903, d. 24. júní 1982, og Kristín Sveinsdóttir húsfreyja, saumakona, f. 18. febrúar 1905, d. 23. nóvember 1991.
Barn þeirra:
2. Haraldur Jóhannesson málari í Grindavík, f. 31. maí 1981. Sambýliskona hans Aldís Hauksdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.