Helgi Leifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. desember 2018 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. desember 2018 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Helgi Leifsson''' vélstjóri, bifreiðastjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík fæddist 1. desember 1945.<br> Foreldrar hans voru Leifur Lárusson sjómaður, f. 18. desember 191...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helgi Leifsson vélstjóri, bifreiðastjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík fæddist 1. desember 1945.
Foreldrar hans voru Leifur Lárusson sjómaður, f. 18. desember 1917, d. 8. desember 1990, og kona hans Hulda Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. október 1922 á Sólbrekku, d. 20. júlí 1984.

Börn Huldu og Leifs:
1. Hilmar Birgir Leifsson á Selfossi, sjómaður, bifreiðastjóri, f. 27. ágúst 1943. Kona hans er Þuríður Fjóla Pálmarsdóttir.
2. Helgi Leifsson vélstjóri, bifreiðastjóri, f. 1. desember 1945. Kona hans, (skildu), var Eydís Ólafsdóttir.
3. Hildur Leifsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 24. apríl 1948. Maður hennar var Ólafur Andrésson, látinn.
4. Sævar Leifsson bifreiðastjóri, fyrrum í Ástralíu, f. 5. júní 1951. Fyrri kona hans, (skilin), var Þórdís Garðarsdóttir. Síðari kona Sævars er Hanna Þorbjörg Svavarsdóttir.

Helgi var með foreldrum sínum í bernsku, en þau skildu.
Hann fluttist til Eyja, gerðist bifreiðastjóri á Bifreiðastöðinni, en síðar í Reykjavík.
Þau Eydís eignuðust Elmu. Þau skildu.

I. Kona Helga, (skildu), var Eydís Ólafsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1948. Foreldrar hennar Ólafur Jónsson vélstjóri, f. 12. desember 1911, d. 30. mars 1984, og kona hans Sigrún Lúðvíksdóttir húsfreyja, f. 9. apríl 1916, d. 5. september 2003.
Barn þeirra:
1. Elma Helgadóttir, f. 2. október 1971. Hún býr í Danmörku.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.