Helgi Benónýsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2018 kl. 19:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2018 kl. 19:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Helgi Benónýsson á Helgi Benónýsson (Vesturhúsum))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Helgi og Nanna.

Helgi Björgvin Benónýsson fæddist 23. apríl aldamótaárið 1900 og lést 19. ágúst 1985. Foreldrar hans voru Benóný Helgason og Guðný Magnúsdóttir. Helgi ólst upp í Skorradal en flutti til Vestmannaeyja þegar hann var 28 ára. Þá hafði hann haft ýmsa starfa og gengið á búnaðarskóla.

Eiginkona Helga var Nanna Magnúsdóttir.

Helgi var mikill athafnamaður á sviði landbúnaðar og jarðræktar í Vestmannaeyjum en einnig var hann með talsverð umsvif í útgerð. Hann bjó að Vesturhúsum og var oft kenndur við heimili sitt, Helgi á Vesturhúsum, en einnig fékk hann annað viðurnefni, var oft kallaður Helgi vindill og var ástæðan sú að hann var mikill vindlareykingamaður og sást helst ekki öðru vísi en með vindil uppi í sér.

Myndir


Heimildir