Helga Jónsdóttir Austmann

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. desember 2020 kl. 21:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. desember 2020 kl. 21:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Jónsdóttir Austmann Ringsted fæddist 1812 á Þykkvabæjarklaustri og lést 17. maí 1839.
Foreldrar hennar voru sr. Jón Austmann prestur, síðar á Ofanleiti, f. 1787, d. 20. ágúst 1858, og kona hans Þórdís Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1788, d. 3. september 1859.

Systkini hennar voru:
1. Magnús Jónsson Austmann bóndi í Nýjabæ, f. 12. apríl 1814, d. 15. maí 1859, kvæntur Kristínu Einarsdóttur húsfreyju.
2. Jón Austmann bóndi í Þorlaugargerði, f. 12. apríl 1814, d. 15. mars 1888, kvæntur Rósu Hjartardóttur.
3. Þórunn Jónsdóttir Austmann, f. 1815, dó ung.
4. Guðný Jónsdóttir Austmann húsfreyja, f. 17. júní 1816, d. 20. júlí 1889, kona Sigurðar Einarssonar bónda á Kirkjubæ, síðar húsfreyja í Einholti á Mýrum, gift sr. Ólafi Magnússyni, síðast húsfreyja í Þórisdal í Lóni, gift Jóni Brynjólfssyni.
5. Lárus Jónsson Austmann, f. 1818, d. 5. mars 1834, drukknaði í Þurfalingsslysinu.
6. Guðmundur Jónsson Austmann, f. (1820).
7. Jórunn Jónsdóttir Austmann húsfreyja í Jómsborg, f. 1821, d. 27. október 1906, fyrr kona Jóns Salómonssonar lóðs og verzlunarstjóra, síðar gift Engilbert Engilbertssyni verzlunarmanni.
8. Guðfinna Jónsdóttir Austmann húsfreyja, f. 1823, d. 7. apríl 1897, kona Árna Einarssonar bónda og alþingismanns.
9. Vigfús Jónsson Austmann, f. 1826, d. 1826.
10. Stefán Jónsson Austmann bóndi í Vanangri, skírður 10. okt. 1829, drukknaði af Gauki 13. mars 1874, kvæntur Önnu Valgerði Benediktsdóttur ljósmóður.

Þau Ringsted bjuggu í „Jónshúsi - Steinshúsi“ 1836 og 1837, í Ringstedshúsi við andlát Helgu 1839.
Þau voru barnlaus.

Maður Helgu, (30. september 1833), var Niels Stephan Ringsted verslunarstjóri, f. 1805. Hún var fyrri kona hans. Síðari kona hans, (1. október 1839), var alnafna fyrri konu hans, Helga Jónsdóttir húsfreyja í Godthaab.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.