Helga Jónsdóttir (Götu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2018 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2018 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Jónsdóttir húsfreyja í Götu fæddist 1814 í Útskálasókn á Reykjanesi og lést 31. maí 1870 á Kirkjubæ.

Helga var vinnukona á Ofanleiti 1845 og 1850, húsfreyja í Götu 1860.
Hún lést á Kirkjubæ 1870, þá ekkja og niðursetningur.

Maður hennar, (6. nóvember 1854), var Björn Sigurðsson sjómaður í Götu, f. 21. ágúst 1824 á Litlu-Heiði í Mýrdal, fórst með Helgu í apríl 1867.
Barn þeirra samkv. SMJ var Þóra Björnsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.