Helga Helgadóttir (Heiðarvegi 40)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. febrúar 2020 kl. 17:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. febrúar 2020 kl. 17:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Helgadóttir húsfreyja, verslunarmaður fæddist 12. janúar 1943 á Hásteinsvegi 7.
Foreldrar hennar voru Helgi Guðmar Þorsteinsson frá Upsum í Svarfaðardal, vélstjóri, f. þar 2. desember 1904, d. 23. júní 1978, og kona hans Steinunn Hulda Guðmundsdóttir frá Hrafnagili, húsfreyja, hárgreiðslukona, f. 20. júní 1911 í Stakkagerði-Vestra, d. 9. janúar 2009.

Börn Huldu og Helga:
1. Hrafnhildur Helgadóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, f. 3. apríl 1932 á Hrafnagili. Maður hennar, skildu, Guðbjörn Guðjónsson.
2. Helga Helgadóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 12. janúar 1943 á Hásteinsvegi 7. Maður hennar Georg Valdimar Hermannsson.

Helga var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lauk fjórða bekkjar gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1960.
Helga hefur unnið verslunarstörf í Eyjum og Borgarnesi, vann síðan á dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi og á leikskólanum Klettaborg þar.
Þau Georg giftu sig 1962, eignuðust tvö börn. Þau hafa búið lengst í Borgarnesi, en bjuggu í Eyjum 1974-1980, þegar Georg var kaupfélagsstjóri þar. Þau bjuggu á Bárustíg 6 skamma hríð, síðan á Steinsstöðum.

ctr
Georg, Hrafnhildur og Helga Helgadóttir.

I. Maður Helgu, (3. desember 1962), er Georg Valdimar Hermannsson verslunarstjóri í Borgarnesi, kaupfélagsstjóri í Eyjum, f. 16. ágúst 1939.
Börn þeirra:
1. Helgi Georgsson grafískur hönnuður, tónlistarmaður, f. 6. september 1962 í Eyjum, d. 5. febrúar 2014. Fyrrum sambýliskona hans Anna Margrét Sveinsdóttir. Fyrrum sambýliskona hans Erla Guðmundsdóttir. Unnusta Eva Lilja Rúnarsdóttir.
2. Hrafnhildur Georgsdóttir húsfreyja, kennari í Kópavogi, f. 11. mars 1976. Maður hennar Jón Óttar Birgisson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.