Helga Ágústa Hjálmarsdóttir (gjaldkeri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Helga Ágústa Hjálmarsdóttir.

Helga Ágústa Hjálmarsdóttir húsfreyja, aðalgjaldkeri fæddist 2. júlí 1927 á Heiðarbýli við Brekastíg 6 og lést 7. júlí 2004 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Hjálmar Eiríksson frá Vegamótum, skrifstofumaður, verslunarstjóri, f. 25. janúar 1900, d. 18. ágúst 1940, og kona hans Jóna Kristinsdóttir frá Steinakoti á Árskógsströnd í Eyjafirðir, ljósmóðir, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.

Börn Jónu og Hjálmars:
1. Sigurbjörg deildarritari, f. 2. apríl 1923 á Vegamótum, d. 1. maí 2010, gift Viggó Einarssyni flugvirkja.
2. Eiríkur skrifstofumaður, f. 4. júlí 1924 á Stað, d. 5. september 1971, kvæntur Hlíf Erlendsdóttur frá Keflavík, látin.
3. Helga Ágústa aðalgjaldkeri á skrifstofu Ríkisspítalanna, f. 2. júlí 1927 í Heiðarbýli við Brekastíg 6, d. 7. júlí 2004, gift Árna Friðjónssyni flugmanni, útgerðarmanni, skrifstofumanni.
4. Anna skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. desember 1929 á Kalmanstjörn við Vestmannabraut 3, gift Kristleifi Einarssyni eftirlitsmanni hjá Íslenzka Álfélaginu í Straumsvík.
5. Ása gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbaksverzlun Ríkisins, f. 4. maí 1931 á Kalmanstjörn, d. 1. mars 2011, gift Hauki Ingimarssyni bifreiðasmið.
6. Fríða Kristbjörg læknaritari á Landspítalanum, f. 4. febrúar 1935 á Faxastíg2, d. 23. september 2021, gift (skildu) Birgi Matthíasi Indriðasyni matsveini í Reykjavík.

Helga var með foreldrum sínum í fyrstu, en faðir hennar lést, er hún var 13 ára.
Hún nam í Gagnfræðaskólanum á Siglufirði.
Helga vann hjá Landsímanum í Eyjum á sumrin. Eftir flutning frá Siglufirði til Reykjavíkur 1964 starfaði hún lengst hjá Ríkisspítulunum í tæp 30 ár, var gjaldkeri, síðan aðalgjaldkeri.
Þau Árni giftu sig 1948, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík, fluttu til Siglufjarðar 1951, bjuggu þar til 1964, er þau fluttu til Reykjavíkur.
Helga Ágústa lést 2004 og Árni 2015.

I. Maður Helgu Ágústu, (1948), var Árni Jóhann Friðjónsson frá Langhúsum í Barðssókn í Skagafirði, flugmaður, flugkennari, útgerðarmaður á Siglufirði, síðar bókhaldari í Reykjavík, f. 25. ágúst 1927, d. 3. desember 2015. Foreldrar hans voru Friðjón Vigfússon bóndi, verkamaður, f. 23. febrúar 1892, d. 25. júlí 1981, og kona hans Margrét Ólína Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1891, d. 7. nóvember 1967.
Börn þeirra:
1. Vigfús Árnason endurskoðandi, framkvæmdastjóri, f. 4. febrúar 1949, d. 18. ágúst 2015. Fyrrum kona Ólöf Guðríður Björnsdóttir.
2. Hjálmar Árnason rafeindavirki, f. 12. september 1953. Kona hans Berglind Einarsdóttir Blandon.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.