Heimaslóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. ágúst 2006 kl. 13:18 eftir Gdh (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. ágúst 2006 kl. 13:18 eftir Gdh (spjall | framlög) (Bil)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Meðan öldur á Eiðinu brotna
og unir fugl við klettaskor.
Mun ég leita í Eyjarnar eins og fyrr
í æsku minnar spor.
Þar sem lundinn er ljúfastur fugla
þar sem lifði Siggi bonn
og Binni hann sótti í sjávardjúp
sextíu þúsund tonn.
Meðan lífsþorstinn leitar á hjörtun
meðan leiftrar augans glóð,
þó á höfðanum þjóti ein þrettán stig
ég þrái heimaslóð.
Lag: Alfreð Washington Þórðarson
Texti: Ási í Bæ