Heimahöfn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 14:38 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 14:38 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1970 1971 1972
Ó, fylgdu mér í Eyjar út
er andar golan sumarhlý,
þar vinir bjóða vín af stút
og viðtökurnar eftir því.
Í Kafhelli þá fyrst ég fer
því frændi lánar bátinn sinn,
og sigli út um Súlnasker
og síðan reika um Hamarinn.
Ég gæti þulið þúsund nöfn
og þyrfti að heilsa hverjum stað,
því þetta er hjartans heimahöfn,
ég held ég fari nær um það.
Á Klettsvíkina kom ég fyrr
og kannast þar við hverja hlein.
Ó, manstu út við Ægisdyr
er aftansólin fegurst skein,
mér finnst það hafi gerst í gær
að glettist blær við lokka og kinn,
því aldrei gleymast augun skær
né æskubjartur hlátur þinn.
Svo göngum við um rinda og reit
þar rekja sporin liðna tíð,
og minning vaknar mörg og heit
um mína vini fyrr og síð.
Lag og texti: Ási í Bæ