Haraldur Hannesson (Fagurlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. apríl 2017 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. apríl 2017 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Til aðgreiningar alnafna.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Haraldur og frú

Haraldur Hannesson fæddist 24. júní árið 1911 og lést 11. maí 2000. Hann bjó ásamt fjölskyldu að Urðaveg 16, Fagurlyst. Hannes Haraldsson skipstjóri er sonur Haralds.

Haraldur var formaður á Baldri VE 24.

Loftur Guðmundsson orti formannsvísu um Harald:

Horfði í æsku á unnarblik
undi við báruskvaldur,
hetjuknár við hrannarkvik
Haraldur með Baldur.
Haraldur ásamt syni sínum Hannesi.
Ásta, Unnur, Sigurbjörg og Hannes Haraldsbörn

Óskar Kárason samdi formannavísu um Harald:

Halar togið hafið svalt
Haraldur á Baldur,
þó að rjúki yfir allt
óður báru faldur.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Harald ég halinn fara
Hannesson nefni sanna.
Bald siglir ill þó alda
æ vilji siglur fægja.
Meta kann mundinn neta
meiðurinn, afla greiður.
Flóða er garpur góður,
glaðlyndur sæmdarmaður.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.