Hans Edvard Thomsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Hans Edvard Thomsen verslunarstjóri og síðar kaupmaður í Godthaabverzlun fæddist 1807 og lést 27. apríl 1881.

Godthaabsverslunin (Miðbúðin) var stofnuð 1830 af P.C. Knudtzon stórkaupmanni og Thomas Thomsen kaupmanni.
Hans Edvard var fyrsti verslunarstjóri þar.
Hann var faktor í Godthaab 1831, sem var ,,Nýr kaupstaður“, var þar 1832 og 1833 með konu sinni, eignuðust barnið Aurora Engeline á því ári, fluttust til Reykjavíkur 1833. Í fylgd með þeim var Christine Cathrine systir hennar, síðar barnsmóðir Hans Edvards.
Hjónin voru í Brekkmannshúsi í Reykjavík 1833-1834, í Knudtzonshúsi í Reykjavík 1835.
Þau fluttust til Þingeyrar þar sem Hans Edvard var verslunarstjóri hjá P.C. Knudtzon 1836-1840.
Christiane var með 3 börnum sínum hjá Ane systur sinni á Vatneyri í Patreksfirði 1840.
Þau fluttust til Kaupmannahafnar 1840 og bjuggu þar síðan, eignuðust saman 8 börn.
Jess Thomsen Christensen og Jens Christian Thorvald Abel eignuðust Godthaabverslunina 1847.
Hans Edvard Thomsen keypti síðan Godthabsverslun af þeim 1858. Samband hans og Brydes kaupmanns í Garðinum var erfitt, en Bryde hafði verið settur til eftirlits með versluninni af hendi lánardrottna Thomsens.
Við andlát Hans Edvards 1881 eignaðist sonur hans Nicolaj Heinrich Thomsen verslunina, en hann seldi Bryde hana 1894. Hann lét rífa húsin og flytja til Víkur í Mýrdal og rak þar verslun.
Hans Edvard lést 1881.

I. Kona Thomsens í Eyjum, (29. október 1832), var Christiane Dorothea Thomsen húsfreyja, dóttir Lauritz Michael Knudsens kaupmanns í Reykjavík og konu hans Margrete Andrea Hölter Knudsen húsfreyju, f. 4. janúar 1781, d. 3. maí 1849. Christiane var fædd 9. október 1814 og lést 31. júlí 1859.
Börn þeirra:
1. Aurora Engeline Thomsen, f. 7. mars 1833 í Eyjum. Hún var í Knudtsonshúsi með foreldrum sínum 1835, með móður sinni og systkinum á Vatneyri 1840 og fluttist með foreldrum sínum til Danmerkur. Maður hennar var Carl Möller.
2. Nicoline Henriette Christiane Thomsen, f. 30. ágúst 1835. Hún var með móður sinni og systkinum á Vatneyri 1840 og fluttist með foreldrum sínum til Danmerkur. Maður hennar var Thomas Thomsen. Þau munu hafa búið í Noregi og síðar í Ameríku, ókunn að öðru leyti.
3. Hans Thomsen, f. 1. apríl 1837, d. 13. maí 1837.
4. Juliana Thomsen (Julie Thomsen) húsfreyja í Tönder og Vordingborg, skírð 3. nóvember 1838, d. 1868. Hún var með móður sinni og systkinum á Vatneyri 1840. Maður hennar var Peter Martin Petræus læknir, f. 10. október 1838, d. 16. janúar 1900.
5. Hans Edvard Thomsen, f. 24. september 1842. Hann var assistent við Godthaabsverslun 1859, verslunarstjóri við Knudtzonsverslun á Þingeyri 1862-1864, fluttist til Kaupmannahafnar 1867 og gerðist bakarameistari. Kona hans var Ragnheiður Metta Pétursdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1842 á Búðum á Snæfellsnesi, d. 13. mars 1885.
6. Nicolaj Heinrich Thomsen verslunarstjóri, síðan kaupmaður í Godthaabverzlun, f. 9. desember 1844 í Kaupmannahöfn, d. 23. apríl 1923 þar.
7. Alvilda Thomsen, f. 24. júní 1847 í Kaupmannahöfn, dó ung.
8. Katarina Alvilda Thomsen Möller, f. 10. júlí 1850 í Kaupmannahöfn, d. 9. maí 1927 í Keflavík. Maður hennar Jóhann Georg Kristjánsson Möller.
9. Julius Thomsen, f. 21. júní 1852 í Kaupmannahöfn, d. í Chicago í Bandaríkjunum. Kona hans var Eliza Mary Lily Bertelsen, f. 19. desember 1845, d. 1. janúar 1938 í Kaupmannahöfn.

II. Þá átti Hans Edvard Thomsen barn með Christine Cathrine Knudsen, f. 27. apríl 1813, d. 8. janúar 1874. Hún var systir konu hans.
Barn þeirra var
9. Lauritz Edvard Thomsen, f. 30. ágúst 1834, d. 7. janúar 1910. Hann varð kjörbarn Þórðar Sveinbjörnssonar dómstjóra, er hann kvæntist Kristínu Katrínu Knudsen móður hans. Fékk hann nafnið Lárus Sveinbörnsson og varð sýslumaður, bæjarfógeti í Reykjavík, landsyfirdómari, bankastjóri og dómstjóri í Reykjavík.
Hálfbróðir Lárusar dómstjóra, sammæddur, var Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld, höfundur þjóðsöngsins.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.