Hannes Hansson (Hvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. september 2017 kl. 11:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. september 2017 kl. 11:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|250px|''Hannes Hansson og Magnúsína Friðriksdóttir. '''Hannes Hansson''' skipstjóri, útgerðarmaður, afgreiðslumaður á Hvoli...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hannes Hansson og Magnúsína Friðriksdóttir.

Hannes Hansson skipstjóri, útgerðarmaður, afgreiðslumaður á Hvoli fæddist 5. nóvember 1891 í Jómsborg og lést 18. júní 1974.
Móðir hans var Jóhanna Hannesdóttir frá Grímshjalli, þá vinnukona í Jómsborg, f. 31. október 1862, finnst hvergi eftir 1891.
Jóhanna lýsti Jón Steinmóðsson, þá kvæntan mann í Sjóbúð, föður Hannesar. Jón neitaði faðerninu.

Hannes fór í fóstur til Ögmundar Ögmundssonar sjómanns í Landakoti og konu hans Vigdísar Árnadóttur húsfreyju, og þar ólst hann upp.
Hann var ,,tökubarn, ófeðraður“ þar 1892, ,,Jóhönnuson“ þar 1893-1895, 9 ára niðursetningur þar 1901, 15 ára vinnumaður þar 1906 og 1907, 19 ára sjómaður skráður í Fagurhól 1910, en staddur á Seyðisfirði, og þar var Magnúsína einnig.
Þau voru í Gröf við fæðingu Ögmundar Friðriks 1911, giftu sig á árinu og bjuggu í Landakoti í lok ársins, svo og 1912 og 1913, eignuðust Guðbjörgu þar 1912, en misstu hana nýfædda. Einar fæddist þar 1913.
Þau voru á Mjóafirði eystra 1914 við fæðingu Hansínu, fluttust til Eyja á því ári og bjuggu þar síðan, voru í Landakoti í lok árs 1914, en voru komin að Hvoli (við Heimagötu) 1915. Þar bjuggu þau uns þau fluttust í nýbyggt hús sitt að Hvoli (við Urðarveg) 1929. Þar bjuggu þau síðan, meðan þau voru í Eyjum.
Hannes varð skipstjóri og útgerðarmaður, en síðar afgreiðslumaður hjá Olíusamlaginu, (sjá ofar).
Hjónin fluttu til Reykjavíkur 1947. Þar starfaði Hannes við olíuafgreiðslu í Örfirisey.
Hannes lést 1974 og Magnúsína 1983.

Kona Hannesar, (10. nóvember 1911), var Magnúsína Friðriksdóttir frá Gröf, húsfreyja, f. 14. maí 1889 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 19. apríl 1983.
Börn þeirra:
1. Ögmundur Friðrik Hannesson sjómaður, f. 16. maí 1911 í Gröf, d. 25. október 2002.
2. Guðbjörg Hannesdóttir, f. 11. janúar 1912 í Landakoti, skírð skemmri skírn, d. 31. janúar 1912.
3. Einar Kjartan Trausti Hannesson skipstjóri, stýrimaður, verkstjóri, f. 27. (17. annarsstaðar) júní 1913 í Landkoti, d. 23. janúar 1999.
4. Hansína Hannesdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1914 í Holti í Mjóafirði eystra, d. 2. mars 2006.
5. Ottó Hannesson vélstjóri, f. 5. ágúst 1915 á Hvoli, d. 26. desember 1966.
6. Ingimar Hannesson, f. 14. maí 1917, d. 25. september 1917.
7. Elías Theodór Hannesson, f. 1. júní 1918 á Hvoli, d. 9. nóvember 1927.
8. Vigdís Hannesdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. desember 1919 á Hvoli, d. 28. maí 2006.
9. Árni Hannesson vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921 á Hvoli, d. 4. júní 1999.
10. Andvana drengur, f. 10. mars 1926.
11. Ágúst Eiríksson Hannesson smiður, f. 2. ágúst 1927 á Hvoli, d. 31.janúar 1951, fórst með flugvélinni Glitfaxa.
12. Guðbjörg Kristín Hannesdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. október 1929 á Hvoli.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


Sjá einnig Heimaslóð: Hannes Hansson