Hannes Gottsveinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 19:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 19:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hannes Gottsveinsson bóndi víða í V-Skaft., síðast á Brekkum í Mýrdal, póstur, fæddist 1796 í Eyjum og fórst á Skeiðarárjökli 19. september 1838.
Faðir hans var Gottsveinn (Gottsvin) bóndi í Stöðulkoti í Þykkvabæ og á Grímsstöðum í V-Landeyjum, f. 17. febrúar 1762, d. 7. júlí 1804, Hannesson bónda á Minni-Völlum og Flagbjarnarholti á Landi, f. 1724, Gíslasonar bónda og hreppstjóra í Hjallanesi þar, f. 1693, d. um 1766, Tómassonar, og fyrri konu Gísla Tómassonar, Helgu húsfreyju, f. 1685, Jónsdóttur prests Ólafssonar.
Móðir Gottsveins og kona Hannesar á Minni-Völlum var Guðný húsfreyja, f. 1727, Jónsdóttir bónda á Minni-Völlum, f. 1691, Arnþórssonar bónda í Austvaðsholti þar, f. 1659, Brynjólfssonar, og konu Arnþórs, Þorgerðar húsfreyju, f. 1665, á lífi 1729, Þorsteinsdóttur.

Móðir Hannesar og kona Gottsveins í Stöðulkoti var Kristín húsfreyja og yfirsetukona, f. 1764 á Parti í Þykkvabæ, d. 28. mars 1831, Jónsdóttir. Gottsveinn var fyrri maður hennar. Síðari maður hennar var Jón Nikulásson, f. 1764.

Kona Hannesar Gottsveinssonar (Gottvinssonar) bónda á Brekkum (23. maí 1819) var Margrét húsfreyja, f. 4. apríl 1796 á Brekkum í Mýrdal, d. 27. janúar 1883 á Kvíabóli þar, Jónsdóttir bónda á Brekkum, f. 1764, d. 30. október 1835, Jónssonar bónda á Kaldrananesi í Mýrdal, f. 1700, Jónssonar og ókunnrar síðari konu hans.
Móðir Margrétar á Brekkum og fyrri kona Jóns á Brekkum var Solveig húsfreyja, f. 1764, Pálsdóttir bónda á Brekkum, f. 1734, Þórðarsonar, og konu Páls, Vigdísar húsfreyju, f. 1734, Eyjólfsdóttur.

Barn Hannesar og Margrétar hér:
Jón Hannesson sjómaður í Nýja-Kastala, f. 1820, drukknaði 1853.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.