Hani

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2006 kl. 09:37 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2006 kl. 09:37 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Nafn eyjunnar er dregið af því að hún lítur út fyrir að vera með kamb. Hani er 97 m hár, hæstur þar sem heitir Hanahöfuð. Eyjan er umkringd háum hömrum sem eru víðast þverhníptir nema helst að vestanverðu. Í brekkunni móti suðri vex bæði gras, skarfakál og slatti af baldursbrá. Veiðikofi er í Hana og legið þar við á sumrum í lundaveiði. Þá hefur og sauðfé verið haft þar til beitar.