Hallgrímur Þorgrímsson (Húsadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. maí 2019 kl. 18:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. maí 2019 kl. 18:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hallgrímur Þorgrímsson.

Hallgrímur Þorgrímsson frá Bræðraborg bifreiðastjóri fæddist 26. desember 1936 í Húsadal og lést 3. maí 2011.
Foreldrar hans voru Ágúst Þorgrímur Guðmundsson verkamaður, sjómaður í Húsadal, síðar í Bræðraborg, f. 16. ágúst 1892 að Háamúla í Fljótshlíð, d. 6. febrúar 1966, og kona hans Guðný Pálsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1891 að Hlíðarenda í Fljótshlíð, d. 19. júlí 1959.

Börn Guðnýjar og Þorgríms:
1. Alfreð Bachmann Þorgrímsson vélstjóri, afgreiðslumaður, f. 23. nóvember 1914 að Háamúla í Fljótshlíð, d. 25. ágúst 1978.
2. Laufey Þorgrímsdóttir í Kópavogi, f. 17. október 1915, d. 15. júlí 1981. Maður hennar var Sigurður Hermann Agnar Jónsson, f. 2. nóvember 1905, d. 31. maí 1975.
3. Sigurður Ágústsson bóndi í Borgarkoti á Skeiðum, f. 22. september 1916 að Háamúla í Fljótshlíð, d. 13. janúar 1988.
4. Margrét Ágústa Ágústsdóttir ráðskona í Reykjavík, f. 14. nóvember 1918 á Ormsvelli í Hvolhreppi, d. 11. júlí 2008.
5. Þuríður Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. nóvember 1920 á Ormsvelli, Hvolhreppi, d. 22. desember 1992.
6. Sigríður Þorgrímsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 29. október 1921 á Ormsvelli í Hvolhreppi, d. 3. maí 1993. Maður hennar var Sölvi Ólafsson.
7. Hulda Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. október 1922 á Sólbrekku, d. 20. júlí 1984.
8. Valgerður Oddný Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. apríl 1924 í Húsadal, d. 7. júlí 2012.
9. Andvana drengur, f. 26. mars 1926 í Húsadal.
10. Einar Ágústsson bifreiðastjóri, f. 13. apríl 1927 í Húsadal, d. 18. september 1984.
11. Sveinbjörg Þorgrímsdóttir verkakona, f. 28. júní 1929 í Húsadal, d. 20. ágúst 1949.
12. Svanhvít Þorgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, borgarstarfsmaður, f. 21. september 1930 í Húsadal, d. 1. október 1989.
13. Andvana stúlka, f. 7. nóvember 1933 í Húsadal.
14. Hallgrímur Þorgrímsson bifreiðastjóri, strætisvagnastjóri í Reykjavík, f. 26. desember 1936 í Húsadal, d. 3. maí 2011.

Hallgrímur var með foreldrum sínum í æsku og var nokkur ár í Öræfum. Hann gerðist bifreiðastjóri hjá Bifreiðastöð Vestmannaeyja.
Hann fluttist til Reykjavíkur 1969 og varð strætisvagnastjóri hjá Reykjavíkurborg, uns hann lét af störfum vegna veikinda 1999.
Hallgrímur eignaðist barn, sem var ættleitt.
Hann lést 2011, ókv.

I. Barnsmóðir Hallgríms var Bára Oddsteinsdóttir, f. 28. september 1942.
Barn þeirra:
1. Kristjana Brynja Sigurðardóttir, f. 24. apríl 1962. Hún var ættleidd af Sigurðir Hermannssyni, f. 4. nóvember 1940. Barnsfeður Brynju: Sigurður Guðjónsson, Jónas Jónasson og Sófus Jón Björnsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.