Hallgrímur Guðjónsson (Sandfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Hallgrímur Guðjónsson, Grímsstöðum, fæddist 8. maí 1894 að Moldnúpi undir Eyjafjöllum. Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson og Ingveldur Unadóttir.

Hallgrímur byrjaði sjómennsku á Skuld (bátur) hjá Jóni Ingileifssyni og síðar á Svan. Formennsku hóf Hallgrímur árið 1917 á Svan og hafði formennsku þar til 1920. Síðar tekur Hallgrímur við formennsku á Ingólfi og var með hann til vertíðarloka ársins 1925. Þá stóð til að Hallgrímur léti smíða nýjan bát, Geir Goða, en Hallgrími entist ekki aldur til að sjá hann, því hann drukknaði 24. ágúst 1925 er hann féll fyrir borð af Emmu.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.