Halldóra Guðmundsdóttir (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Guðmundsdóttir vinnukona fæddist í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1793 og lést 16. maí 1863.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Árnason bóndi í Berjanesi 1801, f. 1767, sonur Árna „eldri‟ Ísleikssonar klausturhaldara og lögréttumanns í Mörtungu á Síðu Ólafssonar, og kona Guðmundar Árnasonar, Kristín Jónsdóttir húsfreyja, ættuð úr Holtum, f. 1763, d. fyrir manntal 1816.

Halldóra var með foreldrum sínum í Berjanesi 1801, með ekklinum föður sínum þar 1816. Hún var vinnukona í Steinum þar 1835 með barn sitt Vilborgu Guðmundsdóttur hjá sér.
Við manntal 1845 var hún vinnukona á Teigi í Fljótshlíð, í Bollakoti þar 1850.
Halldóra fluttist að Gerði 1858 frá Teigi og var vinnukona á Gjábakka 1860.
Hún lést 1863 á Oddsstöðum, ógift vinnukona.

I. Barnsfaðir Halldóru var Guðmundur Hávarðsson í Steinmóðshúsi, f. 1810, d. 28. maí 1860.
Barn þeirra:
Vilborg Guðmundsdóttir vinnukona, f. 8. september 1834, d. 26. júní 1887.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.