Halldóra G. Magnúsdóttir (Skansinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. apríl 2021 kl. 10:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. apríl 2021 kl. 10:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|150px|''Halldóra Guðleif Magnúsdóttir. '''Halldóra Guðleif Magnúsdóttir''' frá Langa-Hvammi, húsfreyja fædd...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Halldóra Guðleif Magnúsdóttir.

Halldóra Guðleif Magnúsdóttir frá Langa-Hvammi, húsfreyja fæddist þar 18. nóvember 1917 og lést 28. desember 2004.
Foreldrar henar voru Magnús Þórðarson kaupmaður, verkamaður f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og kona hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. nóvember 1889 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 22. mars 1984.

Börn Magnúsar og Gíslínu:
1. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
2. Drengur, f. 15. janúar 1919 í Langa-Hvammi, lést nokkurra daga gamall.
3. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
4. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
5. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
6. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
7. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
8. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
9. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
10. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 6. mars 2021.
11. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 4. janúar 2014.

Börn Magnúsar og Margrétar Bjarnadóttur sambýliskonu hans:
12. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, drukknaði 29. janúar 1940.
13. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
14. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
15. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
16. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
17. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Halldóra var með foreldrum sínum í æsku, í Langa-Hvammi og á Miðhúsum, síðan á Skansinum.
Þau Sigurbjartur giftu sig 1944, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra á unglingsaldri. Þau fluttu að Hávarðarkoti í Djúpárhreppi 1936, bjuggu með fósturforeldrum hans og tóku við búinu 1944, og bjuggu þar til 1997, en fluttu þá til Reykjavíkur.
Sigurbjartur lést 2003. Halldóra flutti að Hávarðarkoti. Hún lést 2004 á Hellu.

I. Maður Halldóru, (18. mars 1944), var Sigurbjartur Guðjónsson bóndi, f. 7. mars 1918, d. 31. ágúst 2003. Foreldrar hans voru Guðjón Guðmundsson bóndi á Bala í Djúpárhreppi, f. 5. október 1891, d. 24. nóvember 1918, og kona hans Jónína Valgerður Sigurðardóttir frá Innra-Hólmi í Akraneshreppi, húsfreyja, f. 27. desember 1893, d. 19. ágúst 1970.
Fósturforeldrar Sigurbjarts voru Tyrfingur Björnsson bóndi á Bryggjum í A.- Landeyjum og í Hávarðarkoti, f. 12. maí 1884, d. 1. nóvember 1952, og kona hans Sesselja Guðmundsdóttir frá Búð í Djúpárhreppi, húsfreyja, f. 11. júní 1888, d. 16. júní 1970.
Börn þeirra:
1. Gíslína Sigurbjartsdóttir húsfreyja og ljósmóðir í Sigtúni í Djúpárhreppi, f. 23. apríl 1937 á Skansinum í Eyjum. Maður hennar Hafsteinn Einarsson.
2. Guðjón Sigurbjartsson, f. 5. ágúst 1940, d. 26. maí 1953.
3. Hjördís Sigurbjartsdóttir húsfreyja í Hávarðarkoti, f. 21. júní 1943. Maður hennar Páll Guðbrandsson.
4. Guðjón Ólafur Sigurbjartsson viðskiptafræðingur í Reykjavík, f. 23. ágúst 1955. Kona hans Guðrún Barbara Tryggvadóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 8. janúar 2005. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.