Halldór Sigurðsson (Vestra-Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Halldór Sigurðsson.

Halldór Sigurðsson frá Vestra-Stakkagerði, bifvélavirki, síðan verslunarmaður í Reykjavík fæddist 19. desember 1953 í Vestra-Stakkagerði og lést 15. janúar 2018 á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Jón Sigurður Jóhannesson verkamaður, framreiðslumaður, f. 20. ágúst 1925, d. 5. apríl 2006, og kona hans Sigríður Einarsdóttir frá Staðarfelli, f. 5. febrúar 1922, d. 9. júní 1989.

I. Barn Sigríðar og Vilhelms Ragnars Ingimundarsonar:
1. Gunnar Vilhelmsson múrari, f. 8. júlí 1939 á Staðarfelli. Kona hans Bjarnveig Gunnarsdóttir.
II. Börn Sigríðar og Hans Þorvaldar Sveinssonar:
2. Elín Þorvaldsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 11. október 1941 í Neskaupstað. Maður hennar Pálmi Eyþórsson, látinn.
3. Anna Sigurlaug Þorvaldsdóttir húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 19. mars 1944 í Bár í Neskaupstað. Maður hennar Már Michelsen.
4. Sæunn Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja í Svíþjóð f. 8. maí 1946 í Bár í Neskaupstað. Fósturforeldrar Björn Levý Gestsson, f. 28. september 1889 og síðari kona hans Jóhanna Lárusdóttir, f. 15. maí 1013. Maður hennar Sigurður Þorsteinsson.
5. Þorvaldur Þorvaldsson sjómaður, f. 13. mars 1948 í Vestra-Stakkagerði, d. 2. mars 2009. Kona hans Sigríður Björk Þórisdóttir.
III. Barn Sigríðar og Baldurs Sigurlássonar:
6. Erla Kristinsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Garðabæ, f. 25. desember 1950 í Vestra-Stakkagerði, var ættleidd . Maður hennar Halldór Svavarsson, látinn.
IV. Börn Sigríðar og Jóns Sigurðar Jóhannessonar:
7. Halldór Sigurðsson bifvélavirki í Reykjavík, f. 19. desember 1953 í Vestra-Stakkagerði, d. 15. janúar 2018. Kona hans Eyrún Guðbjörnsdóttir.
8. Einar Sigurðsson bakarameistari í Þorlákshöfn, f. 26. mars 1955 í Vestra-Stakkagerði. Kona hans Arnheiður Svavarsdóttir.
9. Björk Sigurðardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, býr í Bláskógabyggð, f. 7. maí 1957 í Vestra-Stakkagerði. Fyrrum maður hennar Víðir Ástberg Pálsson.
10. Sæmundur Sigurðsson sendibílstjóri í Reykjavík, f. 5. febrúar 1960 í Eyjum. Kona hans Elín Halla Gunnarsdóttir, látin.
11. Sigurður Sigurðsson starfsmaður Volvoverksmiðjanna í Svíþjóð, f. 27. febrúar 1964, d. 5. ágúst 1990. Kona hans Sigurjóna Örlygsdóttir, látin.

Halldór var með foreldrum sínum í Vestra-Stakkagerði, og síðar á Ásavegi 30.
Hann flutti með þeim til Reykjavíkur 1962.
Halldór lærði bifvélavirkjun og vann hjá Vélamiðstöð Reykjavíkur, en vann verslunarstörf hjá SKF Kúlulegusölunni lengi, en lauk starfsferli sínum hjá Olíuverslun Íslands.
Þau Eyrún giftu sig 1978, eignuðust tvö börn.

I. Kona Halldórs, (9. desember 1978), er Eyrún Guðbjörnsdóttir húsfreyja, deildarstjóri, f. 1. júlí 1952 á Suðureyri við Súgandafjörð. Foreldrar hennar eru Guðbjörn Björnsson skrifstofumaður í Reykjavík, f. 8. júlí 1927, og kona hans Kristín Sturludóttir húsfreyja, f. 14. júní 1930.
Börn þeirra:
1. Rúnar Þór Halldórsson tölvufræðingur, f. 28. júní 1979. Kona hans Ragnheiður Thorarensen Antonsdóttir.
2. Kristján Ari Halldórsson forstöðumaður Frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri, f. 16. júní 1987. Kona hans Helga Dagný Bjarnadóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 29. janúar 2018. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.