Halldór Guðbjarnason (forstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. september 2018 kl. 11:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. september 2018 kl. 11:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Halldór Ágúst Guðbjarnason''' viðskiptafræðingur, bankastjóri, forstjóri fæddist 20. október 1946 á Ísafirði.<br> Foreldrar hans voru Guðbjarni Þorvaldsson skipaafg...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Ágúst Guðbjarnason viðskiptafræðingur, bankastjóri, forstjóri fæddist 20. október 1946 á Ísafirði.
Foreldrar hans voru Guðbjarni Þorvaldsson skipaafgreiðslumaður á Ísafirði, f. 23. mars 1909 á Efstabóli í Önundarfirði, d. 23. nóvember 1977 og Elín Sigurbjörg Árnadóttir húsfreyja, verkakona, f. 4. febrúar 1914 á Þverá í Svarfaðardal, d. 2. ágúst 2013.

Halldór lauk stúdentsprófi við Menntaskólann á Akureyri árið 1967 og viðskiptafræðiprófi við Háskóla Íslands 1972. Hann stundaði MBA-nám við Babson College í Boston í Bandaríkjunum 1989-1990.
Halldór var starfsmaður bankaeftirlits Seðlabankans á árunum 1971-1975, var útibússtjóri Útvegsbankans í Eyjum 1975 til 1980, aðstoðarbankastjóri Alþýðubankans 1981-1983, bankastjóri Útvegsbanka Íslands í Reykjavík 1983-1987 og bankastjóri í Landsbankanum í Reykjavík 1991 til 1998.
Halldór var framkvæmdastjóri Samkorta h.f. 1987 til 1989 og varð forstjóri VISA Íslands - Greiðslumiðlunar h.f. árið 2000.

Þau Steinunn giftu sig 1968, eignuðust tvö börn og eitt kjörbarn.
Steinunn lést 2008. Halldór býr í Garðabæ.

Kona Halldórs, (1. júní 1968), var Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008.
Börn þeirra:
1. Lilja Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, lögfræðingur, MBA, forstjóri, f. 4. desember 1967. Maður hennar er Jónas Fr. Jónsson.
2. Elín Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, BA-sálfræðingur, MSc í fjármálum fyrirtækja, viðskiptastjóri, f. 12. desember 1975. Maður hennar er Atli Knútsson.
Kjörbarn hjónanna:
3. Brynjúlfur Jónatansson íþróttafræðingur, verslunarmaður, leiðsögumaður, f. 1. janúar 1977, ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.