Halldór Einarsson (Staðarfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júní 2020 kl. 20:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júní 2020 kl. 20:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Halldór Þorsteinn Einarsson''' frá Staðarfelli, netamaður, vélstjóri fæddist 26. febrúar 1926 og lést 6. mars 1951, tók út af mb. Sæfara.<br> Foreldrar hans voru...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Þorsteinn Einarsson frá Staðarfelli, netamaður, vélstjóri fæddist 26. febrúar 1926 og lést 6. mars 1951, tók út af mb. Sæfara.
Foreldrar hans voru Einar Sæmundsson húsasmíðameistari, f. 9. desember 1884, d. 14. desember 1974, og kona hans Elín Björg Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 29. ágúst 1894, d. 10. september 1973.

Börn Elínar og Einars:
1. Guðrún Ágústa Einarsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 11. ágúst 1917, d. 15. júní 1939.
2. Sæmundur Einarsson sjómaður, síðast í Reykjavík, fóstraður á Hofi VII í A-Skaft, f. 27. apríl 1919, d. 8. september 2003.
3. Soffía Einarsdóttir yngri, húsfreyja, f. 13. janúar 1921 á Staðarfelli, bjó í Reykjavík, d. 1. janúar 2000.
4. Sigríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1922 á Staðarfelli, síðast í Reykjavík, d. 9. júní 1989.
5. Óskar Einarsson vélstjóri, sendibílstjóri, f. 12. júlí 1923.
6. Einar Einarsson húsasmiður, f. 23. júlí 1924 á Staðarfelli, d. 5. janúar 2008.
7. Halldór Þorsteinn Einarsson netamaður, vélstjóri, f. 26. febrúar 1926, d. 6. mars 1951, tók út af mb. Sæfara.

Halldór var með foreldrum sínum í æsku og fram á fullorðinsár. Hann nam tvo vetur í Gagnfræðaskólanum, nam netagerðariðn og vélstjórn, var vélstjóri á mb. Sæfara 1951, er hann tók út og drukknaði. Hann var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.