Halla Jónsdóttir (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. nóvember 2017 kl. 10:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2017 kl. 10:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halla Jónsdóttir frá Dölum, húsfreyja fæddist 6. september 1886 og lést 29. nóvember 1918.
Foreldrar hennar voru Jón Gunnsteinsson bóndi, útvegsmaður og söðlasmiður í Dölum, f. 10. desember 1844, d. 19. júlí 1924, og síðari kona hans Þorgerður Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 4. júní 1855 að Ketilsstöðum Mýrdal, d. 2. mars 1939.

Börn Jóns Gunnsteinssonar af fyrra hjónabandi hans:
1. Guðjón Jónsson verslunarþjónn í Vík, f. 7. febrúar 1875, d. 26. maí 1942.
2. Jóhannes Gunnar Jónsson, bóndi í Suður-Hvammi í Mýrdal, f. 8. febrúar 1876, d. 10. októbr 1905 í Suður-Hvammi.
3. Sigríður Hildur Jónsdóttir, f. 18. júlí 1877, d. 25. júlí 1877.
4. Sigríður Jónsdóttir, f. 18. október 1878, dó 1878, grafin 10. nóvember.
5. Jón Jónsson á Bólstað í Mýrdal, f. 27. apríl 1881, drukknaði 30. júlí 1901.

Börn Þorgerðar og Jóns voru:
1. Halldór Jónsson, f. 24. maí 1884, d. 30. maí 1884.
2. Halldór Jónsson, f. 26. júlí 1885, d. 6. ágúst 1885.
3. Halla Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. september 1886, d. 29. nóvember 1918, gift fyrr, (skildu), Brynjólfi Stefánssyni kaupmanni, f. 14. febrúar 1881, d. 18. desember 1947. Síðari maður hennar var Guðlaugur Brynjólfsson formaður og útgerðarmaður, f. 23. júlí 1890, d. 30. desember 1972. Halla var fyrri kona hans.
4. Kristján Jónsson sjómaður, f. 12. apríl 1888, d. 21. mars 1922, kvæntur Guðnýju Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 29. mars 1890, d. 25. desember 1985. Kristján tók út af Sigríði VE-240 fyrir innan Eyjar.
5. Sveinbjörn Jónsson rafstöðvarstjóri, f. 16. mars 1889, d. 6. apríl 1930, kvæntur Tómasínu Eiríksdóttur húsfreyju, f. 22. júlí 1889, d. 6. október 1941.
6. Guðrún Ragnhildur Jónsdóttir, f. 2. ágúst 1890, d. 14. janúar 1891.
7. Matthías Guðlaugur Jónsson klæðskeri, f. 15. nóvember 1892, d. 25. janúar 1977, kvæntur Unni Pálsdóttur forstöðukonu, f. 3. mars 1911, d. 12. maí 2000.
8. Vilhjálmur Jónsson rafstöðvarstjóri, f. 23. janúar 1893, d. 15. júlí 1971. Hann var kvæntur Nikólínu Jónsdóttur húsfreyju og leiklistarkonu, f. 15. júlí 1900, d. 15. ágúst 1958.
9. Þorgerður Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1895, d. 5. febrúar 1933, gift Gunnlaugi Ásmundssyni, f. 19. apríl 1885, d. 19. febrúar 1951.
10. Vilborg Ragnhildur Jónsdóttir, f. 13 febrúar 1897, d. 18. mars 1897.
11. Hjálmar Jónsson verkamaður, f. 5. júní 1899, d. 25. júlí 1968, kvæntur Guðbjörgu Helgadóttur húsfreyju, f. 16. október 1898, d. 23. júní 1958.

Halla var með foreldrum sínum á Bólstað í Mýrdal til 1904 og fluttist með þeim til Eyja.
Hún giftist Brynjólfi 1905 og bjó á Velli. Þau byggðu Bólstað við Heimagötu 18, eignuðust Jóhannes Brynjólf 1907, en hann dó í Bólstað 32 vikna gamall.
Þau eignuðust annan Jóhannes Brynjólf 1908, en skildu skömmu síðar.
Halla var með Jóhannes son sinn í vinnumennsku á Tjönum u. Eyjafjöllum 1910.
Hún bjó með Guðlaugi í Odda 1913, kona hans þar 1914 og 1915, fæddi andvana barn þar 1915, var með syni sína Sveinbjörn Óskar og Jóhannes þar 1916-1917.
Hún ól Höllu Bergsteinu 1918 og lést rúmum 3 vikum síðar.

I. Fyrri maður Höllu, (31. maí 1905, skildu), var Brynjólfur Stefánsson skósmiður, síðar kaupmaður, f. 14. febrúar 1881, d. 18. desember 1947.
Barn þeirra var
1. Jóhannes Gunnar Brynjólfsson, f. 1907, d. 23. nóvember 1907, 32 vikna gamall.
2. Jóhannes Gunnar Brynjólfsson forstjóri, f. 20. september 1908, d. 27. maí 1973.

II. Síðari maður Höllu, (1914), var Guðlaugur Brynjólfsson formaður og útgerðarmaður, f. 23. júlí 1890, d. 30. desember 1972. Halla var fyrri kona hans.
Börn þeirra voru:
3. Sveinbjörn Óskar Guðlaugsson verslunarstjóri, fiskimatsmaður, f. 4. febrúar 1914 í Odda, d. 6. maí 1994.
4. Andvana drengur, f. 28. október 1915 í Odda.
5. Halla Bergsteina Guðlaugsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 5. nóvember 1918 í Odda, d. 17. ágúst 1997.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.