Halla Bergsteinsdóttir (Múla)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. desember 2019 kl. 19:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2019 kl. 19:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Margrét Halla Bergsteinsdóttir. '''Margrét ''Halla'' Bergsteinsdóttir''' frá Múla, húsfreyja, kaupmaður, skrifstof...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Margrét Halla Bergsteinsdóttir.

Margrét Halla Bergsteinsdóttir frá Múla, húsfreyja, kaupmaður, skrifstofumaður, afgreiðslumaður fæddist 9. október 1941 á Múla og lést 22. september 2012 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Bergsteinn Jónasson hafnarvörður, hafnarstjóri, yfirverkstjóri, f. 17. desember 1912 á Múla, d. 2. júní 1996, og kona hans Svea María Normann húsfreyja, f. 23. nóvember 1917 á Ísafirði, d. 26. júní 1994 í Eyjum.

Börn Sveu og Bergsteins:
1. Kjartan Þór Bergsteinsson, f. 15. september 1938 á Múla. Fyrri kona hans er Ingibjörg Andersen. Síðari kona hans var Arndís Egilson.
2. Margrét Halla Bergsteinsdóttir, f. 9. október 1941 á Múla, d. 22. september 2012. Maður hennar var Sigurgeir Lindberg Sigurjónsson.
3. Stúlka, f. 28. ágúst 1945 í Litlabæ, d. 29. ágúst 1945.
4. Jónas Kristinn Bergsteinsson, f. 24. ágúst 1948 í Gefjun, Strandvegi 42. Kona hans er Þórhildur Óskarsdóttir.
5. Vilborg Bettý Bergsteinsdóttir, f. 7. desember 1950 í Gefjun, Strandvegi 42, ógift.
Fósturdóttir þeirra, dóttir Kjartans sonar þeirra og Ingibjargar Andersen:
6. Kristín Kjartansdóttir, f. 23. október 1957 að Hásteinsvegi 27. Maður hennar, skildu, var Guðmundur Elmar Guðmundsson.

Halla var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1957, námi við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði.
Halla vann á hóteli í Kaupmannahöfn um skeið. Hún vann hjá kaupfélagi Vestmannaeyja, vann við verslun þeirra Sigurgeirs, síðan vann hún í afgreiðslu Herjólfs.
Halla var mikið í íþróttum og söng.
Þau Sigurgeir giftu sig 1964, eignuðust eitt barn.
Þau bjuggu á Hrauntúni 22 1972 og meðan báðum entist líf.
Sigurgeir lést 1993. Halla bjó síðast á Eyjahrauni 10. Hún lést 2012.

I. Maður Margrétar Höllu, (14. nóvember 1964), var Sigurgeir Sigurjónsson frá Laugalandi, framkvæmdastjóri, kaupmaður, vigtarmaður, verkstjóri, f. 15. mars 1941 á Höfðabrekku, d. 28. september 1993.
Barn þeirra:
1. Svea Soffía Sigurgeirsdóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, f. 10. september 1963. Barnsfaðir hennar Þorsteinn Jóhannes Úlfarsson. Maður hennar Óskar Ólafsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Garður.is.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 29. september 2012. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.