Hólmgarður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2020 kl. 11:10 eftir Inga2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2020 kl. 11:10 eftir Inga2 (spjall | framlög) (Tenging á Sólbjörgu Jónsdóttur)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hólmgarður er litla hvíta húsið til hægri á myndinni.
Fundur verkafólks við Samkomuhúsið.

Húsið Hólmgarður stóð við Vestmannabraut 12. Húsið var íbúðarhús með 5 íbúðum. Á efri hæð voru 3 íbúðir. Austast bjó Margrét Bjarnadóttir. Karl G. Marteinsson bjó þar um tíma hjá ömmu sinni. Í miðíbúðinni bjuggu eldri systur sem hétu Jónína og Margrét. Vestast bjó Þórarinn Gunnlaugsson með sína fjölskyldu. Austast á neðri hæð bjó Óli Jónsson með sína fjölskyldu. Í miðíbúðinni bjó kona sem hét Sóla með tveimur sonum sínum Herði og Guðjóni (kenndir við móður sína). Vestast voru 2 herbergi sem notaðar voru sem geymslur. Útigeymslur og kamrar voru norðan við húsið. Bæjarsjóður átti húsið.

Það var rifið niður og sett upp bílastæði á lóðinni.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu


Heimildir

  • Karl G. Marteinsson. Munnleg heimild.
  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.