Hílaríus Illugason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. desember 2016 kl. 20:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2016 kl. 20:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hílaríus Illugason prestur fæddist 21. október 1735 að Ofanleiti og lést 16. febrúar 1802.
Foreldrar hans voru sr. Illugi Jónsson og kona hans Sigríður Franzdóttir húsfreyja, f. (1705), dóttir sr. Franz Íbssonar í Hruna í Hrunamannahreppi og konu hans Solveigar Árnadóttur.

Hílaríus lærði hjá föður sínum, varð stúdent úr Skálholtsskóla 1754.
Hann var um tíma djákn í Skálholti, vígðist 1760 aðstoðarprestur sr. Hafliða Bergsveinssonar að Hrepphólum, fékk Mosfell í Grímsnesi 1762, sagði af sér 1799, en dvaldi þar til dd. 1802, er hann féll niður stiga.

Hílaríus var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (6. september 1761), var Gróa Bjarnadóttir á Breiðabólstað í Reykholtsdal Sigurðssonar.
Barn þeirra var
1. Dóttir, sem dó nýfædd.

II. Síðari kona hans, (10. júní 1790), var Margrét Kolbeinsdóttir prests í Miðdal í Laugardal Þorsteinssonar.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.