Gísli Eggertsson (Götu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gísli Eggertsson frá Götu.

Gísli Eggertsson frá Götu fæddist 4. ágúst 1882 og lést 10. september 1961 í Salt Lake City í Utah.
Foreldrar hans voru Eggert Guðmundur Ólafsson sjómaður í Götu, síðar járnbrautarstarfsmaður og bóndi í Utah, f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918, og fyrri kona hans Guðrún Árnadóttir húsfreyja í Götu, f. 26. ágúst 1854, d. 24. ágúst 1882.

Gísli missti móður sína árið, sem hann fæddist.
Hann fluttist til Vesturheims með föður sínum 1887. Þar tók hann trú mormóna. Hann nefndi sig Gill Olson, en ættarnafnið hafði faðir hans tekið sér.
Gísli bjó í Fourth Ward í Salt Lake City í Utah.

Kona Gísla, (7. nóvember 1904), var Emma Wilhelmina fædd Hansen 17. mars 1884 í Vissenbjerg í Odense í Danmörku.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.