Gísli Bryngeirsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. desember 2021 kl. 11:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. desember 2021 kl. 11:01 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gísli Bryngeirsson.

Gísli Bryngeirsson úrsmiður frá Búastöðum eystri fæddist 13. maí 1928 og lést 10. júní 2014 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Bryngeir Torfason formaður á Búastöðum, f. 26. september 1895, d. 9. maí 1939, og kona hans Lovísa Gísladóttir húsfreyja á Búastöðum, f. 18. júní 1895, d. 30. mars 1979.
Gísli lærði úrsmíði hjá Ingólfi Guðmundssyni úrsmið. Hann starfaði í Eyjum og Borgarnesi.
Gísli var tónlistarmaður, lék mikið í hljómsveitum.

I. Kona Gísla, (desember 1955), er Gréta Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1934, d. 14. nóvember 2015.
Börn Gísla og Grétu:
1. Lovísa Gísladóttir, f. 22. nóvember 1952.
2. Steinunn Ingibjörg Gísladóttir, f. 16. febrúar 1954.
3. Konráð Gíslason, f. 20. ágúst 1960.
4. Hrafnhildur Gísladóttir, f. 22. ágúst 1962. Hún dó 6 mánaða gömul.
Þau Gréta dvöldu í Hraunbúðum.
Gísli lést 2014 og Gréta 2015.

Gísla er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.



Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit