Gyða Arnórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gyða Arnórsdóttir.

Gyða Arnórsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja fæddist þar 25. maí 1922 og lést 26. janúar 2021 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Arnór Guðmundsson skrifstofustjóri, f. 15. febrúar 1892, d. 31. janúar 1964, og kona hans Margrét Jónasdóttir húsfreyja, f. 9. september 1899, d. 1. október 1980.

Börn Margrétar og Arnórs - í Eyjum:
1. Unnur Arnórsdóttir tónlistarkennari, f. 18. júní 1918, d. 23. febrúar 2013.
2. Gyða Arnórsdóttir húsfreyja, f. 25. maí 1922, d. 26. janúar 2021.

Gyða var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var kaupakona í Stóru-Sandvík í Flóa 1940, er Hermann var við störf að byggja flugvöllinn í Kaldaðarnesi.
Þau Hermann giftu sig 1944, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Reykjavík, fluttu til Eyja 1962, bjuggu fyrstu 2-3 árin í Vík, en síðan á Vestmannabraut 22B til Goss, en síðar á Hvolsvelli.
Hermann lést 1996 og Gyða 2021.

I. Maður Gyðu, (7. október 1944), var Hermann Magnússon símvirki, póst- og símsstöðvarsjóri, f. 12. júlí 1921, d. 4. ágúst 1996.
Börn þeirra:
1. Jónas Hermannsson sjómaður, vélvirkjameistari, f. 7. mars 1946, d. 4. september 2004. Kona hans Dagbjört Theodórsdóttir.
2. Helgi Hermannsson tónlistarkennari á Hvolsvelli, f. 27. febrúar 1948. Kona hans Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir Sigurðssonar.
3. Hermann Ingi Hermannsson tónlistarmaður, bakari, matsveinn, f. 26. 1949. Fyrrum kona hans Guðfinna Sigurgeirsdóttir Ólafssonar. Sambúðarkona Elísabet Nönnudóttir.
4. Arnór Hermannsson bakarameistari í Arnórsbakaríi í Eyjum, f. 23. nóvember 1954. Kona hans Helga Jónsdóttir Kjartanssonar.
5. Magnús Hermannsson símvirki á Gufuskálum, síðan tölvutæknir á Selfossi, f. 9. júlí 1959. Kona hans Anna Linda Sigurðardóttir Ögmundssonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 5. febrúar 2021. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.