Guðrún Ágústsdóttir (Úthlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2017 kl. 14:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2017 kl. 14:11 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ágústsdóttir húsfreyja á Eskifirði fæddist 6. september 1910 í Gerðakoti u. Eyjafjöllum og lést 11. maí 1999.
Foreldrar hennar voru Guðný Eyjólfsdóttir verkakona, síðar í Úthlíð, f. 7. júní 1890 í Björnskoti u. Eyjafjöllum, d. 10. febrúar 1979, og barnsfaðir hennar Ólafur Ágúst Sigurhansson sjómaður, f. 27. ágúst 1888, drukknaði 14. janúar 1915.

Systur Guðrúnar voru:
1. Sigríður Ágústsdóttir húsfreyja f. 5. júní 1912 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 14. október 1996.
2. Jóna Alda Illugadóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 17. júlí 1918 í Úthlíð, d. 2. ágúst 1992.

Guðrún fluttist til Eyja með móður sinni 1912, var í Úthlíð með henni enn 1930.
Þau Ingvar giftu sig 1937, bjuggu á Heimagötu 20, (Karlsbergi) 1940. Þar fæddist Katrín 1938. Þau fluttust til Eskifjarðar 1941, eignuðust Júlíus Kristinn þar 1943.
Ingvar lést 1963. Guðrún bjó síðast á Selfossi og lést 1999.

I. Maður Guðrúnar, (3. október 1937), var Ingvar Guðmundur Júlíusson sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, skipaskoðunarmaður, byggingaverkamaður, oddviti á Eskifirði 1962-dd., f. 2. júlí 1907, d. 1. desember 1963.
Börn þeirra:
1. Katrín Ingvarsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 5. september 1938 á Heimagötu 20, (Karlsbergi).
2. Júlíus Kristinn Ingvarsson bankagjaldkeri á Eskifirði, síðar bankastjóri í Þorlákshöfn, f. 17. mars 1943 á Eskifirði. Kona hans: Hafdís Þóra Ragnarsdóttir húsfreyja, talsímakona, leikskólakennari, f. 2. janúar 1946. Foreldrar hennar voru Ragnar Sigurmundsson vélstjóri, f. 20. ágúst 1916, d. 4. október 2007, og kona hans Anna Kristín Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. ágúst 1913, d. 10. mars 1947.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkir samtíðarmenn. Jón Guðnason og Pétur Haraldsson. Bókaútgáfan Samtíðarmenn. Reykjavík 1965-1970.
  • Manntöl.
  • Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum

undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.