Guðrún Sveinbjörnsdóttir (Nýja-Kastala)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. október 2015 kl. 22:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. október 2015 kl. 22:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Sveinbjörnsdóttir (Nýja-Kastala)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sveinbjörnsdóttir frá Leiðólfsstöðum á Stokkseyri, húsfreyja fæddist 11. nóvember 1868 í Oddagörðum í Flóa og lést 3. maí 1955 á Elliheimilinu.
Foreldrar hennar voru Sveinbjörn Snorrason bóndi á Torfastöðum í Biskupstungum, síðar í Oddagörðum og Leiðólfsstöðum í Flóa, f. 11. ágúst 1820, d. 15. júní 1903, og kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Tungufelli í Hrunamannahreppi, húsfreyja, f. 1828 í Laugardælasókn.

Guðrún var með fjölskyldu sinni í Oddagörðum 1870, með föður sínum og systkinum á Leiðólfsstöðum 1880, vinnukona hjá Einari bróður sínum á Grjótlæk á Stokkseyri 1890, húsfreyja á Sjónarhóli II á Stokkseyri 1901. Þau Guðmundur voru leiguliðar í Nýja-Kastala þar 1910 með 3 börn sín.
Guðmundur fluttist frá Stokkseyri til Eyja 1912 og Guðrún kom með 2 börn þeirra 1914. Sveinbjörg kom ekki með þeim.
Þau voru á Reynifelli við Vesturveg 1918-1920, á Seljalandi, (Hásteinsvegi 10) 1921 og enn 1925, leigðu í Mörk, (Hásteinsvegi 13) 1930.
Guðrún dvaldi að síðustu á Eliheimilinu í Skálholti. Guðrún lést 1955 og Guðmundur 1961.

Maður hennar, (1898), var Guðmundur Sigurðsson verkamaður, f. 23. ágúst 1875, d. 16. ágúst 1961.
Börn þeirra hér:
1. Sveinbjörg Guðmundsdóttir, f. 8. nóvember 1900, d. 25. nóvember 1927.
2. Eiríkur Guðmundsson verkamaður, f. 19. ágúst 1904 á Stokkseyri, síðast á Elliheimilinu, d. 10. október 1965, ókv., barnlaus.
3. Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir, f. 20. október 1907, d. 10. júlí 1991.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.