Guðrún Stefánsdóttir (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 18:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 18:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Stefánsdóttir húsfreyja, í dvöl í Presthúsum, fæddist 1768 í Pétursey í Mýrdal og lést 11. apríl 1858 hjá Jóni syni sínum í Presthúsum.
Faðir hennar var Stefán bóndi í Pétursey, f. 1738, d. 29. júní 1828 í Pétursey, Eyjólfsson bónda í Strandarholti í Meðallandi, d. fyrir manntal 1762, Jónssonar, og konu Eyjólfs, Guðrúnar húsfreyju, f. 1713, Sigmundsdóttur bónda í Strandarholti, f. 1685, Bjarnasonar.

Móðir Guðrúnar í Presthúsum er ókunn.

Maður Guðrúnar, (25. júlí 1800), var Jón bóndi bóndi í Skammadal og Rofunum í Mýrdal, f. 1771 á Rauðhálsi þar, Hjaltason bónda á Rauðhálsi, Jónssonar, og konu Hjalta, Sigríðar húsfreyju, f. 1739, Jónsdóttur.

Guðrún var húsfreyja í Skammadal og Rofunum í Mýrdal, síðar vinnukona á Ketilsstöðum þar og niðursetningur á Brekkum þar.
Hún var ekkja hjá Jóni syni sínum og Önnu Eiríksdóttur í Presthúsum 1845, 1850 og 1855. Hún lést 1858.
Guðrún var föðurmóðir Ástríðar Hjaltadóttur húsfreyju í Kokkhúsi. Ástríður var hjá Jóni bróður sínum í Presthúsum 1845.

Börn Guðrúnar og Jóns hér:
Anna Jónsdóttir, f. 1803, varð holdsveik.
Jón Jónsson bóndi og sjómaður í Presthúsum, f. 1806.
Hjalti Jónsson, f. 1809, bóndi í Mýrdal. Hann var faðir Ástríðar Hjaltadóttur húsfreyju í Kokkhúsi


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.