Guðrún Jónsdóttir (eldri) (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 15:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 15:26 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 27. mars 1862 í Dyrhólasókn í Mýrdal og lést 14. janúar 1939.
Faðir hennar var Jón bóndi á Ketilsstöðum, síðar á Litlu-Hólum í Mýrdal, f. 1. mars 1830 í Hryggjum, d. 20. mars 1871, Þorkelsson bónda í Hryggjum í Mýrdal 1835, f. 25. apríl 1801, d. 24. mars 1862, Runólfssonar húsmanns í Rofabæ 1801, Hávarðssonar og konu Runólfs í Rofabæ, Ragnhildar Ólafsdóttur.
Móðir Jóns á Ketilsstöðum og kona Þorkels í Hryggjum var Þórunn húsfreyja frá Brekkum í Mýrdal, f. 20. október 1791, d. 8. febrúar 1870, Sveinsdóttir bónda á Brekkum 1801, Eyjólfssonar, og konu Sveins, Guðrúnar húsfreyju Þóðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur í Árbæ í Holtum Kortssonar.
Móðir Guðrúnar á Kirkjubæ og kona Jóns á Ketilsstöðum var Ingiríður húsfreyja, f. 2. nóvember 1832 í Fjósum, d. 18. janúar 1913 í Norðurgarði í Eyjum, Einarsdóttir bónda á Giljum í Mýrdal 1835, f. 1790 í Vindási í Hvolhreppi, d. 3. júní 1866 í Hryggjum, Jónssonar bónda á Brekkum í Hvolhreppi, f. 1762, d. 12. febrúar 1842, Þorbjörnssonar, og konu Jóns á Brekkum, Vilborgar húsfreyju, f. 1763, d. 14. febrúar 1843, Jónsdóttur.
Móðir Ingiríðar Einarsdóttur og kona Einars á Giljum var Salgerðar húsfreyja, f. 1789 í Eyjum, d. 10. júní 1862 á Ketilsstöðum, vinnukona á Flókastöðum í Fljótshlíð 1816, Bjarnadóttir og Guðrúnar Björnsdóttur, f. 1765.

Systkini Guðrúnar í Eyjum voru:
1. Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 28. febrúar 1855, mun hafa látist í Utah.
2. Einar Jónsson bóndi og sjómaður í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937, kvæntur Árnýju Einarsdóttur.
3. Bjarni Jónsson í Norðurgarði, bóndi og málari í Utah, f. 19. apríl 1863.
4. Þorkell Jónsson bóndi á Gjábakka, f. 1. október 1867. Hann fluttist til Vesturheims. Kona hans var Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1864.
5. Salgerður Jónsdóttir vinnukona á Kirkjubæ og í Hólshúsi f. 28. desember 1869 á Litlu-Hólum í Mýrdal.

Maður Guðrúnar, (20. nóvember 1896), var Arngrímur Sveinbjörnsson bóndi á Kirkjubæ, f. 17. júní 1868, d. 11. febrúar 1937.
Börn Arngríms og Guðrúnar hér:
1. Engilbert Arngrímsson, f. 17. ágúst 1899, d. 14. maí 1920, drukknaði af smábát í Höfninni.
2. Sigurjón Arngrímsson, f. 25. október 1903, d. 2. nóvember 1903.
3. Salgerður Arngrímsdóttir, (Sala á Kirkjubæ) húsfreyja á Kirkjubæ, kona Jóns Nikulássonar, f. 20. október 1905, d. 25. mars 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.