Guðrún Halldórsdóttir (Helgabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 14:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 14:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Halldórsdóttir verkakona frá Helgabæ fæddist 14. nóvember 1861 og lést 26. júlí 1933.
Foreldrar hennar voru Halldór Jónsson tómthúsmaður og sjómaður í Helgabæ, f. 14. desember 1832, drukknaði í apríl 1867, og kona hans Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1833, d. 7. mars 1864.

Guðrún var með foreldrum sínum í frumbernsku. Móðir hennar lést 1864 og var Guðrúnu þá komið í fóstur austur í Meðalland og var niðursetningur á Skurðbæ 1865-1877, vinnukona á Grímsstöðum þar 1877-1886, í Skurðbæ 1886-1894. Þá fór hún að Elliðavatni við Reykjavík. Hún var í Árbæ við Reykjavík 1905, í Breiðholti þar 1910.
Hún lést 1933 ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.