Guðný Sigurmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. desember 2015 kl. 10:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. desember 2015 kl. 10:32 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðný

Guðný Sigurmundsdóttir fæddist 1. janúar 1926 og lést 6. október 1963, 37 ára gömul. Foreldrar hennar voru Sigurmundur Einarsson og Margrét Þorsteinsdóttir.

Þann 23. maí árið 1948 giftist Guðný Einari J. Gíslasyni. Þau bjuggu í Arnarhóli við Faxastíg. Börn þeirra urðu þrjú. Elst er Guðrún Margrét, fædd 16. desember 1949. Hún er meðferðarfulltrúi hjá Samhjálp og býr í Reykjavík og á hún tvö börn. Í miðjunni er Guðni, fæddur 23. febrúar 1953. Guðni er blaðamaður á Morgunblaðinu og býr í Breiðholti. Hann er kvæntur Guðfinnu Helgadóttur og eiga þau fjögur börn. Yngstur barna Einars og Guðnýjar er Sigurmundur Gísli, fæddur 26. september 1957. Sigurmundur rekur ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldu. Hann er kvæntur Unni Ólafsdóttur og eiga þau fimm börn.

Einar var forstöðumaður Betelsafnaðarins og tók Guðný virkan þátt í safnaðarstarfinu með söng og hljóðfæraleik.

Guðný skrifaði tvær skemmtilegar sögur í Blik á unglingsaldri:

Myndir