Guðni Tómas Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. apríl 2019 kl. 10:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. apríl 2019 kl. 10:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, vélstjóri fæddist 20. september 1906 í Reykjavík og lést 2. apríl 1995 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson ökumaður, múrari, skipasmiður, verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876, d. 2. október 1958, og fyrri kona hans Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880, d. 13. nóvember 1913.
Stjúpmóðir Guðna Tómasar var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880, d. 11. maí 1954.

I. Barnsmóðir Guðmundar var Vilborg Kristjánsdóttir, þá í Ólafsvík, en sama ár vinnukona á Akri í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en síðar á Mið-Hvammi í Dýrafirði, f. 11. júlí 1868, d. 22. febrúar 1941. Foreldrar hennar voru Kristján Steindórsson bóndi í Eyrarbúð í Laugarbrekkusókn á Snæf., f. 1815, d. 25. janúar 1892, og Vilborg Bjarnadóttir vinnukona, f. 1829, d. 28. mars 1883.
Barn þeirra:
1. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.

II. Fyrri kona Guðmundar var Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880 í Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, d. 13. nóvember 1913. Foreldrar hennar voru Sigurður Greipsson, þá kvæntur vinnumaður í Lægsta-Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, f. 14. nóvember 1841, d. 21. júlí 1890, og kona hans Kristjana Jónsdóttir vinnukona þar, f. 20. desember 1849, d. 24. júní 1943.
Börn þeirra:
2. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
3. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Kasthúsum í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
4. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
5. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.

III. Barnsmóðir Guðmundar var Ólína Sigríður Ólafsdóttir í Reykjavík, f. 11. maí 1876, d. 22. júlí 1928. Foreldrar hennar voru Ólafur Jón Sigurðsson prentsmiður, lausamaður, húsmaður í Borgarfirði, f. 4. desember 1844, d. 1. ágúst 1879 og kona hans Helga Magnúsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1850, d. 9. október 1911.
Barn þeirra:
6. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. 11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.

IV. Síðari kona Guðmundar, (1920), var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.
Börn þeirra:
7. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, síðar á Vatnsleysuströnd, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, d. 17. nóvember 1985.
8. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
9. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920, d. 25. október 1997.

Guðni var fyrstu ár sín með foreldrum sínum í Reykjavík, en móðir hans lést, er hann var 7 ára.
Hann fór í fóstur til ættfólks síns í Mosfellssveit sjö ára, en var kominn til föður síns og Guðríðar Þórunnar, síðari konu hans 1920.
Hann fluttist með þeim til Eyja 1921 og bjó með þeim á Eiðinu, að Ofanleiti, í Stórhöfðavita og á Brimhólum.
Guðni Tómas fór til lands og mun hafa dvalið í A-Landeyjum. Þaðan kom hann til Eyja 1929, var leigjandi ásamt Ingólfi bróður sínum á Hásteinsvegi 8 1930.
Hann varð vélstjóri og sjómaður.
Þau Júlía giftu sig 1940, bjuggu í Heiðardal, Hásteinsvegi 2 á því ári, eignuðust kjörbarnið Yngva þar 1941, son Önnu Hjálmarsdóttur vinnukonu í Heiðardal, f. 10. febrúar 1923, d. 13. janúar 1995.
Þau fluttu úr Eyjum á fyrri hluta fimmta áratugarins, bjuggu í Reykjavík.
Júlía lést 1993 og Guðni Tómas 1995.

I. Kona Guðna Tómasar, (26. október 1940), var Júlía Gróa Gísladóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1904 í Sjávarborg á Eyrarbakka, d. 6. maí 1993.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Yngvi Guðnason vélvirki, f. 25. júlí 1941 í Eyjum. Kona hans er Hulda Þorsteinsdóttir frá Arnarfelli, Skólavegi 29.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.