Guðmundur Jónsson (hreppstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. janúar 2016 kl. 21:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. janúar 2016 kl. 21:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Jónsson bóndi, sjávarbóndi og hreppstjóri fæddist um 1757 á Vilborgarstöðum og lést 4. apríl 1836.

Faðir hans var Jón Árnason, líklega sá, sem var bóndi á Vilborgarstöðum 1762, f. 1732.
Móðir Guðmundar var Þorgerður húsfreyja, f. um 1724, á lífi á Vilborgarstöðum 1802, Þorkelsdóttir bónda í hjáleigu frá Krossi 1729, f. 1689, Jónssonar.
Móðir Þorgerðar var Sigríður húsfreyja, f. 1697, Jónsdóttir, líklega bónda í Miðey og k.h. Ragnhildar Pálsdóttur, eða etv. dóttir Jóns Jónssonar í Oddakoti og k.h. Gunnhildar Arnoddsdóttur.

Guðmundur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans var Þorlaug Eiríksdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum 1801, f. um 1750, d. 27. október 1803, 56 ára.

Börn Guðmundar og Þorlaugar hér:
1. Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. um 1782, d. 8. maí 1854.
2. Jón Guðmundsson, f. 1784, d. 14. maí 1785, 23 mánaða úr vatnssótt.
3. Rannveig Guðmundsdóttir, d. 29. október 1785, d. 3. nóvember 1785 úr ginklofa.
4. Guðrún Guðmundsdóttir, f. 22. nóvember 1786, d. 30. nóvember 1786 úr ginklofa.
5. Ísleifur Guðmundsson, f. 9. ágúst 1788, d. 22. ágúst 1788 úr ginklofa.
6. Elísabet Guðmundsdóttir, f. 23. október 1789, d. 31. október 1789 úr ginklofa.
7. Sigríður Guðmundsdóttir, f. 18. desember 1790, d. 20. desember 1790 úr ginklofa.
8. Hans Guðmundsson bóndi í Presthúsum, f. 2. júní 1792, d. 23. júní 1835.

II. Síðari kona Guðmundar, (20. nóvember 1804), var Kristín Snorradóttir húsfreyja og ljósmóðir. f. 1773, d. 26. febrúar 1855.

Börn þeirra hér:
9. Eyjólfur, f. 8. des. 1805, finnst á mt 1816, fermdur 1818, en finnst ekki síðar lífs né liðinn.
10. Jón, f. 29. júní 1807, d. 5. júlí s. ár úr ginklofa.
11. Jón, f. 17. okt. 1808, d. 21. okt s. ár úr ginklofa.
12. Guðbjörg, f. 3. jan. 1810, d. 3. febr. s. ár úr andarteppu.
13. Þórdís, f. 15. okt. 1811, d. 20. okt. s. ár úr „Barnaveikindum“, lifði 5 daga.
14. Snorri, f. 6. febr. 1813, finnst ekki síðan, (dánarskrár vantar 1813-16).
15. Elísabet Guðmundsdóttir, f. 11. okt. 1815, d. 27. júní 1837.
Aðeins Eyjólfur og Elísabet eru hjá þeim 1816.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.