Guðlaug Þorsteinsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2015 kl. 17:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2015 kl. 17:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Þorsteinsdóttir húskona á Kirkjubæ fæddist 1772 í Selshjáleigu í A-Landeyjum og lést 19. maí 1828.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Snorrason bóndi í Selshjáleigu, f. 1748, var á lífi 1777, og kona hans Anna Marteinsdóttir frá Stóru-Hildisey, húsfreyja, f. 1743, d. 28. maí 1807.

Guðlaug var vinnukona á Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum 1801, vinnukona í Selshjáleigu þar 1816.
Hún fluttist frá Bakkahjáleigu að Kornhól 1821.
Hún var bústýra Jóns Þorsteinssonar húsmanns á Kirkjubæ við giftingu þeirra 1824, húsfreyja á Löndum við andlát 1828; dó úr landfarsótt, þá 56 ára.

I. Barnsfaðir hennar var Eyvindur Jónsson, síðar bóndi í Brekkuhúsi, f. 1787, d. 7. apríl 1849.
Barn þeirra var
1. Þorsteinn Eyvindsson bóndi í Akurey, f. 8. ágúst 1807, d. 18. apríl 1894.

II. Maður Guðlaugar, (4. júlí 1824), var Jón Þorsteinsson tómthúsmaður á Kirkjubæ, f. 1783, d. 23. maí 1850.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.