Guðlaug Jónsdóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2015 kl. 17:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2015 kl. 17:00 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Jónsdóttir Ömpuhjalli, húsfreyja á Búastöðum, Steinsstöðum, Vilborgarstöðum og í Ólafshúsum, fæddist 1754 og lést 16. febrúar 1836, 82 ára.
Guðlaug var í Ömpuhjalli við giftingu 1788, húsfreyja á Búastöðum 1788, Steinsstöðum 1790, Vilborgarstöðum 1795 og í Ólafshúsum 1798. Þar bjó hún 1801.
Hún var 81 árs niðursetningur á Vilborgarstöðum 1835.
Hún lést 1836, hafði eignast 7 börn, sem dóu öll á fyrsta árinu úr ginklofa.

Maður hennar, (6. desember 1788), var Guðmundur Jónsson bóndi, f. 1764, drukknaði 22. apríl 1815.
Börn þeirra hér:
1. Guðmundur Guðmundsson, f. 5. apríl 1789, d. 15. apríl 1789 úr ginklofa.
2. Signý Guðmundsdóttir, f. 31. desember 1790, d. 8. nóvember 1791 úr ginklofa.
3. Jórunn Guðmundsdóttir, f. 1. september 1792, d. 7. september 1792 úr ginklofa.
4. Jón Guðmundsson, f. 28. desember 1793, d. 2. janúar 1794 úr ginklofa.
5. Guðný Guðmundsdóttir, f. 31. júlí 1795, d. 6. ágúst 1795 úr ginklofa.
6. Guðmundur Guðmundsson, f. 29. maí 1798, d. 6. júní 1798 úr ginklofa.
7. Jón Guðmundsson, f. 3. nóvember 1800, d. 9. nóvember 1800 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.