Guðlaug Ingveldur Bergþórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. ágúst 2018 kl. 11:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. ágúst 2018 kl. 11:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Ingveldur Bergþórsdóttir húsfreyja í Innri-Njarðvík fæddist 18. nóvember 1908 í Svaðkoti og lést 4. apríl 1985.
Foreldrar hennar voru Bergþór Björnsson, síðar bóndi í Austari Krókum á Flateyjardal, S-Þing., f. 4. september 1882, d. 18. febrúar 1957 og barnsmóðir hans Guðrún Guðný Jónsdóttir, þá í Svaðkoti, f. 10. janúar 1873, d. 9. september 1957.

Hálfbróðir Guðlaugar Ingveldar var Guðjón Jónsson rakari, f. 1912, d. 1998.
Móðurmóðir Guðlaugar Ingveldar var Guðrún Bergsdóttir, húsfreyja í Hallgeirsey, en dvaldi í Svaðkoti síðustu æviár sín.
Móðursystkini Guðlaugar Ingveldar í Eyjum voru:
1. Steinvör Jónsdóttir húsfreyja í Nýjabæ.
2. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Svaðkoti og síðan í Suðurgarði
3. Jón Jónsson öryrki í Svaðkoti og síðan í Nýjabæ.

Guðlaug Ingveldur var fóstruð í Svaðkoti og síðan í Suðurgarði hjá Ingibjörgu móðursystur sinni og Jóni Guðmundssyni.
Hún fluttist til Suðurnesja, giftist Guðmundi 1933.
Þau bjuggu á Hvoli í Innri-Njarðvík, eignuðust 7 börn, en misstu tvö börn á 1. ári.

Maður Guðlaugar Ingveldar, (16. desember 1933), var Guðmundur Alfreð Finnbogason sjómaður, fræðimaður frá Hvoli, f. 8. nóvember 1912, d. 19. apríl 1987.
Börn þeirra hér:
1. Drengur, f. 22. nóvember 1933, d. 27. mars 1934.
2. Stefanía Guðmundsdóttir, f. 28. október 1934 á Hvoli, d. 1. ágúst 2018.
3. Guðbjörg Edda Guðmundsdóttir, f. 20. janár 1936 á Hvoli.
4. Finnbogi Geir Guðmundsson, f. 4. október 1937 á Hvoli.
5. Laufey Ósk Guðmundsdóttir, f. 10. september 1940 á Hvoli.
6. Jón Björgvin Guðmundsson, f. 16. desember 1941, d. 27. apríl 1942.
7. Jón Már Guðmundsson, f. 16. ágúst 1943.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 21. ágúst 2018. Minning Stefaníu Guðmundsdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.