Guðjón Hjörleifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2013 kl. 08:46 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2013 kl. 08:46 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður.

Guðjón Hjörleifsson er fæddur 18. júní 1955. Foreldrar hans eru Hjörleifur Guðnason múrarameistari og Inga Jóhanna Halldórsdóttir. Eiginkona Guðjóns frá árinu 1979 er Rósa Elísabet Guðjónsdóttir og eiga þau 4 börn; Sæþór Orra, Silju Rós, Söru Dögg og Sindra Frey.

Nám og störf

Guðjón hóf nám á verslunarbraut árið 1973 og var starfsmaður Verslunar Gunnars Ólafssonar & Co. hf. frá 1973 til 1975. Hann var starfsmaður Sparisjóðs Vestmannaeyja 1975, fyrst sem gjaldkeri en síðan ráðinn sem skrifstofustjóri þar og var hann þar til ársins 1990 er hann var ráðinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum frá árinu 1990 til ársins 2002. Á árunum 2002-2003 starfaði Guðjón sem útibússtjóri Sjóvár Almennra hf. í Vestmannaeyjum.

Guðjón sat í stjórn Eyverja í 11 ár og var í eitt ár formaður félagsins. Hann sat í stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Þá var Guðjón einn stofnanda ungtemplarafélagsins Flakkarans í Vestmannaeyjum ásamt því að vera formaður Nemendafélagsins í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Guðjón sat um tíma í stjórn Íþróttafélagsins Þórs.

Alþingisstörf

Frá 2003 hefur Guðjón setið á Alþingi sem 5. þingmaður Suðurkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Á Alþingi hefur Guðjón átt sæti í eftirfarandi nefndum:

  • Sjávarútvegsnefnd, frá 2004 (formaður)
  • Félagsmálanefnd, frá 2003
  • Menntamálanefnd, 2003-2004
  • Samgöngunefnd, frá 2003
  • Íslandsnefnd VES-þingsins, frá 2003

Guðjón skipaði 7. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2007 og er nú varaþingmaður.


Heimildir