Guðfinna Guðmundsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2015 kl. 14:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2015 kl. 14:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðfinna Guðmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir í Stakkagerði, fæddist 1776 í Rimakoti í A-Landeyjum og lést 27. júní 1832.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Bárðarson bóndi í Rimakoti í A-Landeyjum, síðar á Miðhúsum, f. 1745, d. 1. júlí 1813 og kona hans Þórdís Vigfúsdóttir húsfreyja, síðar á Miðhúsum, f. 1744 á Klasabarða í V-Landeyjum, d. 1. janúar 1840.

Systkini Guðfinnu í Eyjum voru:
1. Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1772, d. 10. ágúst 1843, gift Þorvaldi Gíslasyni.
2. Sr. Tómas Guðmundsson prestur, f. 25. nóvember 1779, d. 17. ágúst 1855.

Guðfinna var komin til Eyja 1798, er hún ól Jón Bergsson, sem lést eins dags gamall.
Þau Bergur giftust 1799, bjuggu í fyrstu á Gjábakka, en síðan í Stakkagerði.
Hún ól Bergi alls 10 börn. Átta barna þeirra dóu á fyrstu dögum lífsins úr ginklofa og eitt „af sóttarmeini“ eins dags gamalt, etv. einnig ginklofi.
Eitt barn lifði til fullorðinsára, Vigfús Bergsson bóndi og hreppstjóri í Stakkagerði, einn af ættfeðrum Guðjóns á Oddsstöðum, Vigfúsar í Holti, Jóhanns á Brekku, Sigurlínar í Túni og Þórunnar í Þingholti. Við manntal 1816 voru þau búsett í Stakkagerði með barninu Vigfúsi.
Þau Bergur skildu 1825.
Hún bjó með Jóni Gíslasyni, sem hafði verið vinnumaður hjá þeim Bergi. Þau réðust til Ofanleitis, þar sem Guðfinna var ráðskona hjá prestinum. Síðar fengu þau að nýta jörðina um skeið.
Guðfinna lést 1832.

I. Maður Guðfinnu, (31. janúar 1799, skildu 1825), var Bergur Brynjólfsson bóndi, f. 1766 í Skammadal í Mýrdal, d. 3. febrúar 1840 í Eyjum. Guðfinna var síðari kona hans. Börn þeirra hér:
1. Jón Bergsson, f. 27. desember 1798, d. 28. desember 1798 „af sóttarmeini“.
2. Sigríður Bergsdóttir, f. 11. febrúar 1800, d. 16. febrúar 1800 úr ginklofa.
3. Guðmundur Bergsson, f. 11. apríl 1801, d. 18. apríl 1801 úr ginklofa.
4. Þórdís Bergsdóttir, f. 15. júlí 1802, d. 23. júlí 1802 úr ginklofa.
5. Þórdís Bergsdóttir, f. í apríl 1804, d. 17. apríl 1804 úr ginklofa, lifði nokkra daga.
6. Jón Bergsson, f. 23. apríl 1805, d. 30. apríl 1805 úr ginklofa.
7. Guðrún Bergsdóttir, f. 4. september 1808, d. 10. september úr „ þeim venjulega ginklofa“.
8. Bergur Bergsson, f. 12. apríl 1810, d. 22. apríl 1810 úr „venjulegum ginklofa“.
9. Vigfús Bergsson bóndi og hreppstjóri í Stakkagerði, f. 10. júlí 1811, drukknaði 18. nóvember 1842.
10. Margrét Bergsdóttir, f. 17. nóvember 1812, d. 30. nóvember 1812 úr ginklofa.

II. Sambýlismaður Guðfinnu var Jón Gíslason vinnumaður hjá henni í Stakkagerði, en þau fylgdust að frá 1825, voru barnlaus. Eftir lát Guðfinnu 1832 kvæntist hann Sesselju Sigurðardóttur húsfreyju og ljósmóður. Þau bjuggu í Stakkagerði 1845. Jón var frá Hallgeirsey í A-Landeyjum, skírður 11. mars 1797, d. 23. desember 1865.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.