Guðbjörg Matthíasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 09:35 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 09:35 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg og Sigurður.

Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir er fædd 14. mars 1952 í Reykjavík. Árið 1976 giftist Guðbjörg Sigurði Einarssyni en hann lést 4. október 2000. Guðbjörg og Sigurður bjuggu allan sinn búskap í Vestmannaeyjum og eignuðust fjóra syni, Einar, Sigurð, Magnús og Kristin. Guðbjörg á heimili að Birkihlíð.

Guðbjörg lauk stúdentsprófi frá Verslunarskólanum 1973, útskrifaðist sem kennari árið 1976 en kenndi í Lögregluskólanum í Reykjavík frá 1973 til 1976 og hóf störf sem kennari við Barnaskóla Vestmannaeyja árið 1976. Eftir lát Sigurðar á Guðbjörg Ísfélag Vestmannaeyja að mestu. Guðbjörg situr í stjórn Ísfélagsins og Tryggingamiðstöðvarinnar þar sem hún er stór hluthafii. Hún situr auk þess í stjórn Landsbanka Íslands.

Guðbjörg var formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Eyglóar þar til það var lagt niður árið 2007. Guðbjörg sat í 11. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjórnakosninga 2006. Guðbjörg er einnig í sóknarnefnd Ofanleitissóknar.