Guðbjörg Bergmundsdóttir (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. október 2018 kl. 19:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. október 2018 kl. 19:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðbjörg Bergmundsdóttir (Hólnum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Bergmundsdóttir húsfreyja á Landagötu 18, Hólnum fæddist 15. nóvember 1922 í Sjávargötu og lést 10. október 2014.
Foreldrar hennar voru Bergmundur Arnbjörnsson frá Presthúsum, síðar í Hvíld, sjómaður, bræðslumaður í Nýborg, f. 17. október 1884 í Klöpp, d. 21. nóvember 1952, og kona hans Elín Helga Björnsdóttir frá Miðbæ í Norðfirði, húsfreyja, f. 19. maí 1888 að Tjarnarlandi á Héraði, d. 7. ágúst 1963.

Börn Bergmundar og Elínar:
1. Laufey Bergmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 1. apríl 1911 í Brautarholti, d. 21. júní 1996.
2. Guðrún Hildur Bergmundsdóttir, f. 1. júní 1912 í Presthúsum, d. 1. júlí 1913 í Götu.
3. Helga Bergmundsdóttir húsfreyja á Patreksfirði, f. 17. júlí 1913 í Götu, d. 26. apríl 1952.
4. Björn Bergmundsson sjómaður, verkamaður í Eyjum, f. 26. september 1914 í Götu, d. 26. mars 1981.
5. Elísabet Sigþrúður Bergmundsdóttir húsfreyja á Norðfirði, f. 21. mars 1916 á Kirkjubæ, d. 10. júlí 1981.
6. Aðalbjörg Jóhanna Bergmundsdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 27. desember 1919 á Strönd, d. 8. september 2003.
7. Guðbjörg Bergmundsdóttir húsfreyja á Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, f. 15. nóvember 1922 í Sjávargötu, d. 10. október 2014.
8. Ása Bergmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, á Dalvík og í Reykjavík, f. 2. maí 1926 í Sjávargötu, d. 28. nóvember 2004.
Fósturbörn Bergmundar og Elínar:
9. Birna Berg Bernódusdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður í Hafnarfirði, dóttir Aðalbjargar, f. 8. september 1938 í Stakkholti.
10. Bergmundur Elli Sigurðsson trésmiður í Hafnarfirði, sonur Ásu, f. 15. apríl 1948.

Guðbjörg var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Sjávargötu, í Stakkholti, á Faxastíg 8 A. Hún vann um skeið við sauma í Ráðagerði .
Þau Sigurður giftu sig 1949, eignuðust tvö börn og einnig var hjá þeim unglingurinn Bergmundur Elli Sigurðsson, systursonur Guðbjargar. Hann hafði verið fósturbarn Bergmundar og Elínar foreldra Guðbjargar. Þau Sigurður byrjuðu búskap sinn á Hvoli við Urðaveg, eignuðust Kristinn Þór 1949. Þau voru komin að Landagötu 18, Hólnum 1952 við skírn Bergmundar Helga.

Guðbjörg og Sigurður með sonum sínum, Kristni (t.v.) og Bergmundi (t.h.). Með þeim á myndinni er lengst til hægri Bergmundur Elli Sigurðsson.

I. Maður Guðbjargar, (23. apríl 1949), var Sigurður Yngvi Kristinsson hafnarvörður, f. 11. júní 1919, d. 8. apríl 2003.
Börn þeirra:
1. Kristinn Þórir Sigurðsson stýrimaður, smiður, umsjónarmaður, f. 31. maí 1948. Kona hans er Ásta Úlfarsdóttir.
2. Bergmundur Helgi Sigurðsson, sjómaður, sendibifreiðastjóri, f. 12. júlí 1952. Kona hans er Ingibjörg Sigurjónsdóttir.
Fóstursonur:
3. Bergmundur Elli Sigurðsson trésmiður í Hafnarfirði, sonur Ásu, f. 15. apríl 1948 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Ólöf Helga Júlíusdóttir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.