Gunnsteinn Jónsson (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. maí 2015 kl. 19:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. maí 2015 kl. 19:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gunnsteinn Jónsson sjómaður í Hólshúsi fæddist 10. október 1859 í Vesturholtum u. Eyjafjöllum og lést 8. október 1892.
Foreldrar hans voru Jón Gunnsteinsson eldri bóndi í Vesturholtum, f. 31. ágúst 1824, d. 29. maí 1869, og kona hans Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1823, d. 13. maí 1865.

Gunnsteinn var bróðursonur
1. Jóns Gunnsteinssonar yngri, útvegsbónda í Dölum
2. Jóhönnu Gunnsteinsdóttur húsfreyju í Dölum.
3. Ólafar Gunnsteinsdóttur bústýru á Hólnum. maí 1865.

4. Systir Gunnsteins var Guðrún Jónsdóttir bústýra á Vilborgarstöðum, f. 28. febrúar 1864, d. 10. nóvember 1890.
Móðursystir hans var
5. Margrétar Jónsdóttur húsfreyju í Nýja-Kastala móður Hannesar lóðs.
Ættbogi Gunnsteins í Eyjum í föðurætt var víðfeðmur. Sjá elsta hluta hans á síðu
Jóhönnu Gunnsteinsdóttur húsfreyju í Dölum.

Gunnsteinn var tökubarn í Kerlingardal í Mýrdal, vinnumaður á Höfðabrekku þar 1879-1885, í Bólstað þar 1886-1887.
Hann fluttist úr Mýrdal að Hólshúsi 1887 ásamt Sigríði Guðmundsdóttur bústýru, barni þeirra Guðjónínu á 1. ári og Elínu Jónsdóttur móður Sigríðar, sem kom með Helga Guðmundsson son sinn 11 ára með sér.
Gunnsteinn var tómthúsmaður og sjómaður í Hólshúsi til dd. 1892.

Kona Gunnsteins, (11. nóvember 1888), var Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1861, d. 5. júni 1949.
Börn þeirra hér:
1. Guðjónína Gunnsteinsdóttir ráðskona, f. 12. apríl 1887, d. 14. september 1965.
2. Sigríður Gunnsteinsdóttir vinnukona í Hólshúsi, f. 14. febrúar 1889, d. 25. júní 1909.
3. Guðrún Gunnsteinsdóttir vinnukona á Lundi, síðar húsfreyja á Reynishólum í Mýrdal, f. 19. júlí 1891, d. 8. júní 1975.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.