Gunnar Jónsson (Miðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. janúar 2020 kl. 12:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. janúar 2020 kl. 12:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gunnar Jónsson.

Gunnar Jónsson var fæddur í Vestmannaeyjum 18. janúar 1940 og lést í Reykjavík 13. júní 2013. Hann var sonur hjónanna Rósu Guðmundsdóttur frá Málmey og Jóns Guðmundssonar frá Goðalandi sem var mikill aflamaður á sinni tíð.

Gunnar var kvæntur Selmu Jóhannsdóttur. Börn þeirra eru Eysteinn, Jón Atli og Árni. Gunnar og Selma búa á Illugagötu 53.

Gunnar byrjaði til sjós 1958 með föður sínum á Ver og lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1961. Gunnar hóf formennsku á Ver á humarveiðum árið 1963. Á þessum árum var hann á haustsíldveiðum með Kristni Pálssyni á Berg. Hann var á gamla Berg þegar báturinn fórst út af Snæfellsnesi haustið 1962 Gunnar var stýrimaður á nýjum Bergi 1963. Árið 1965 réðst hann á Ísleif IV með Guðmari Tómassyni heitnum og Gísla Jónassyni. Ísleifur IV var með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta það ár. Gunnar varð skipstjóri á Ísleifi IV 1966 og tók við Ísleifi VE 63 árið 1967. Árið 1975 keypti hann Ísleifsútgerðina ásamt fleirum og var skipstjóri á nýjum Ísleifi allt til ársins 2004 þegar þeir seldu Vinnslustöðinni reksturinn.

Gunnar var aflakóngur Vestmannaeyja árin 1971 og 1973.