Guðrún Stígsdóttir (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 14:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 14:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Stígsdóttir''' vinnukona frá Brekkuhúsi fæddist 12. september 1817 og lést 28. febrúar 1868.<br> Foreldrar hennar voru [[Stígur Jónsson (Brekkuhúsi)|Stígur ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Stígsdóttir vinnukona frá Brekkuhúsi fæddist 12. september 1817 og lést 28. febrúar 1868.
Foreldrar hennar voru Stígur Jónsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 2. apríl 1793, d. 8. mars 1838, og kona hans Oddrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1781, d. 1. september 1846.

Guðrún var með fjölskyldu sinni í Ömpuhjalli og Brekkuhúsi, síðan með ekkjunni móður sinni, og 1845 með henni hjá Þóru systur sinni. Hún var svo vinnukona hjá Pétri Jónssyni og Guðrúnu Eyjólfsdóttur í Elínarhúsi 1850, en 1855 var hún hjá Þóru í Brekkuhúsi og vinnukona þar 1860.
Guðrún var ógift og barnlaus.
Hún lést 1868, „niðursetningur frá Brekkuhúsi- af uppdráttarveikindum“.


Heimildir