„Guðrún Kristín Erlendsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|150px|''Guðrún Kristín Erlendsdóttir. '''Guðrún Kristín Erlendsdóttir''' frá Hamragörðum í Vestur-Eyjafjallahreppi fæd...)
 
m (Verndaði „Guðrún Kristín Erlendsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 14. nóvember 2019 kl. 20:12

Guðrún Kristín Erlendsdóttir.

Guðrún Kristín Erlendsdóttir frá Hamragörðum í Vestur-Eyjafjallahreppi fæddist þar 10. september 1929 og lést 23. desember 2010.
Foreldrar hennar voru Erlendur Guðjónsson frá Hamragörðum, bóndi, f. 4. júní 1890, d. 17. apríl 1969 og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir frá Stóru-Hildisey, húsfreyja, f. 13. ágúst 1886, d. 19. júní 1956.

Guðrún Kristín var með foreldrum sínum í æsku.
Hún gekk í farskóla og var í Húsmæðraskólanum á Laugarvatni veturinn 1948-1949.
Þau Guðjón giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hjarðarholti við Vestmannabraut 69 við fæðingu Sigríðar Heiðrúnar, voru komin á Brekastíg 33 við fæðingu Trausta 1965 og bjuggu þar til Goss. Þá bjuggu þau í Fljótshlíð um skeið og á Selfossi, en 1975 settust þau að á Hlíðarvegi 16 í Kópavogi og bjuggu þar, uns Kristín fluttist á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi.
Guðrún Kristín lést 2010. Guðjón býr í Kópavogi.

Maður Guðrúnar Kristínar, (23. apríl 1964), er Guðjón Traustason af Skaftafellskyni, f. 23. apríl 1943.
Börn þeirra:
1. Sigríður Heiðrún Guðjónsdóttir textílkennari, f. 15. desember 1963, gift Ágústi Ólasyni.
2. Trausti Guðjónsson pípulagningameistari, f. 28. janúar 1965, giftur Lísu Maríu Karlsdóttur.
3. Erlendur Reynir Guðjónsson verktaki, f. 21. maí 1969, giftur Guðfinnu Björk Sigvaldadóttur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.