Guðrún Ingveldur Traustadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ingveldur Traustadóttir (Inga) frá Hjarðarholti við Vestmannabraut 69, húsfreyja, sjúkraliði fæddist þar 5. mars 1954.
Foreldrar hennar voru Trausti Guðjónsson frá Skaftafelli, húsasmíðameistari, f. 13. ágúst 1915 að Eyjarhólum, d. 2. desember 2008 á Landspítalanum, og kona hans Ragnheiður Jónsdóttir frá Brekku í Gilsfirði, húsfreyja, f. 12. október 1917, d. 3. mars 2011 á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík.

Börn Ragnheiðar og Trausta:
1. Halldóra Traustadóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 28. júní 1939. Maður hennar er Einar Jónasson, látinn.
2. Guðjón Traustason vélvirkjameistari, f. 23. apríl 1943, d. 4. janúar 2020. Kona hans Guðrún Kristín Erlendsdóttir, látin.
3. Kornelíus Traustason húsasmíðameistari, f. 30. maí 1946. Kona hans Elín Pálsdóttir.
4. Símon Eðvald Traustason bóndi á Ketu í Skagafirði, f. 1. ágúst 1948. Kona hans Ingibjörg Jóhanna Jóhannesdóttir.
5. Sólveig Rósa Benedikta Traustadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 12. júlí 1950, d. 5. mars 2011. Maður hennar Sigurður S. Wiium, látinn.
6. Vörður Leví Traustason prestur og fyrrverandi lögregluþjónn, f. 21. okt. 1952. Kona hans Ester Karin Jacobsen frá Noregi.
7. Guðrún Ingveldur Traustadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 5. mars 1954. Maður hennar Geir Jón Þórisson.

Guðrún Ingveldur var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Víghólaskóla í Kópavogi 1971, varð sjúkraliði í Aker sjúkrahúsinu í Ósló 1975.
Guðrún Ingveldur var gangastúlka í Borgarspítalanum 1971, símastúlka í Bifreiðum og landbúnaðarvélum um haustið og til júní 1972, en fór þá til Noregs þar sem hún var gangastúlka á sjúkrahúsi, nam síðar sjúkraliðun í Ósló.
Hún var sjúkraliði við sjúkrahúsið í Eyjum frá 1975 til 1992, við Hlein, sambýli fatlaðra á Reykjalundi til 2012, en var póstur við Pósthúsið í Eyjum 2012-2017.
Þau Geir Jón giftu sig 1975, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Stóragerði 7 frá 1974 til 1992, þá í Reykjavík til 2012, er þau fluttu til Eyja og búa þar á Heiðarvegi 46.

I. Maður Guðrúnar Ingveldar, (1. nóvember 1975), er Geir Jón Þórisson lögreglumaður, yfirlögregluþjónn, f. 24. apríl 1952 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Þórir Rúnar Geirsson lögreglumaður, rafvirki í Eyjum, f. 1. júní 1978. Fyrrum kona hans Steinunn Steinþórsdóttir. Kona hans Guðrún María Jónsdóttir.
2. Narfi Ísak Geirsson kennari, búsettur í Kópavogi, f. 17. mars 1981. Fyrrum kona hans Guðrún Hlín Bragadóttir.
3. Símon Geir Geirsson kennari, lögreglumaður í Eyjum, f. 5. desember 1984. Fyrrum kona hans Eydís Berglind Baldvinsdóttir. Kona hans Júlíana Andersen.
4. Ragnheiður Lind Geirsdóttir sjúkraliði, snyrtifræðingur í Eyjum, f. 30. júlí 1987. Maður hennar Brynjar Ólafsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.