Guðrún Guðmundsdóttir yngri (Landlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. mars 2020 kl. 13:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. mars 2020 kl. 13:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Jónína Guðmundsdóttir''' frá Landlyst, húsfreyja fæddist 17. apríl 1932 í Víðidal og lést 6. september 1989. <br> Foreldrar hennar voru ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónína Guðmundsdóttir frá Landlyst, húsfreyja fæddist 17. apríl 1932 í Víðidal og lést 6. september 1989.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Hróbjartsson skósmiður, f. 8. ágúst 1903, d. 20. ágúst 1975, og kona hans Sigrún Þórhildur Guðnadóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1912, d. 20. desember 1993.

Börn Þórhildar og Guðmundar í Landlyst:
1. Guðrún Jónína Guðmundsdóttir, f. 17. apríl 1932 í Víðidal, d. 6. september 1989. Maður hennar Olgeir Jónas Jóhannsson.
2. Halldóra Guðmundsdóttir, f. 29. nóvember 1934, d. 2. júní 2009. Maður hennar Sigtryggur Helgason.
3. Helena Björg Guðmundsdóttir, f. 4. maí 1936 í Landlyst. Maður hennar Arnar Sigurðsson.
4. Konráð Guðmundsson, f. 30. desember 1938, d. 14. nóvember 2016. Kona hans Elín Guðbjörg Leósdóttir.
5. Sesselja Guðmundsdóttir, f. 8. ágúst 1940 í Landlyst, d. 9. janúar 1987. Maður hennar Reynald Jónsson.
6. Guðmundur Lárus Guðmundsson, f. 1. september 1942 í Landlyst, d. 24. október 2016. Kona hans Stefanía Snævarr.
7. Guðni Þórarinn Guðmundsson, f. 6. október 1948 í Landlyst, d. 13. ágúst 2000. Kona hans Elín Heiðberg Lýðsdóttir.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Olgeir giftu sig 1955, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 7, byggðu við Heiðarveg 60 og bjuggu þar, uns þau fluttust til Reykjavíkur 1972 og bjuggu þar á Háleitisbraut 51.
Guðrún lést 1989 og Olgeir 1991.

I. Maður Guðrúnar Jónínu, (20. desember 1955), var Olgeir Jónas Jóhannsson frá Fáskrúðsfirði, múrari, f. 26. júlí 1933, d. 30. apríl 1991.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Jóhann Olgeirsson læknir, f. 14. janúar 1956. Kona hans Edda Björk Arnardóttir.
2. Sigríður Bína Olgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26. janúar 1968.
3. Þórhildur Ýr Olgeirsdóttir, f. 14. nóvember 1969.
4. Gyða Björg Olgeirsdóttir, f. 20. júní 1970.
5. Olga Hrönn Olgeirsdóttir, f. 27. janúar 1973.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.